Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 1. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 383  —  1. mál.




Nefndarálit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.



    Nefndin hóf störf 28. september sl. og átti viðtöl við fulltrúa sveitarfélaga sem gerðu henni grein fyrir erindum sínum. Þá hefur nefndin kallað fyrir fulltrúa ráðuneyta og einstakra stofnana.     Frá því að nefndin hóf störf við afgreiðslu frumvarpsins hefur hún haldið 38 fundi og átt viðtöl við fjölmarga aðila, m.a. fulltrúa ráðuneyta og Ríkisendurskoðunar.
    Samkvæmt 2. mgr. 25. gr. þingskapa getur fjárlaganefnd vísað til annarra fastanefnda þeim þáttum fjárlagafrumvarpsins sem fjalla um málefnasvið þeirra. Nefndin óskaði bréflega eftir álitum fastanefnda þingsins um þá þætti frumvarpsins sem varða málefnasvið hverrar um sig. Nefndirnar hafa skilað álitum og eru þau birt sem fylgiskjöl með nefndarálitinu eins og fyrir er mælt í þingsköpum.
    Í frumvarpinu var gert ráð fyrir að frumjöfnuður á árinu 2010, þ.e. jöfnuður án fjármagnstekna og fjármagnsgjalda, yrði neikvæður um 1,6% af vergri landsframleiðslu og að batinn yrði nálægt 7% frá árinu 2009 þar sem frumjöfnuður var áætlaður neikvæður um 8,6% í ár. Breytingar á tekjum og gjöldum ríkissjóðs munu leiða til þess að frumjöfnuður verður á bilinu 1–1,5% lakari en gert var ráð fyrir í frumvarpinu. Þessar breytingar rúmast hins vegar innan þeirra áætlana sem settar voru fram sumarið 2009 í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um jöfnuð í ríkisfjármálum. Samkvæmt þeim hefur verið miðað við að frumjöfnuður batni að meðaltali um 3–4% af landsframleiðslu á ári þar til tekjujöfnuðurinn í heild verður orðinn jákvæður, en þó þannig að stærsta skrefið verði stigið á árinu 2010. Í frumvarpinu var stefnt að heldur meiri bata í frumjöfnuðinum á næsta ári en samkvæmt áætluninni, eða sem svarar til um 0,5%. Auk þess hefur frekari yfirferð og útfærsla á aðgerðaráformum í ríkisfjármálum, sem fól í sér bæði samráð og endurmat á efnahagslegum áhrifum, leitt til þeirrar niðurstöðu að nokkuð er dregið úr þeim ráðstöfunum, sérstaklega hvað varðar skattahækkanir.
    Nefndin hefur lokið afgreiðslu flestra þeirra erinda sem henni bárust. Breytingartillögur þær sem eru til umfjöllunar við 2. umræðu nema samtals 4.881,1 m.kr. til hækkunar á sundurliðun 2, þ.e. Fjármálum ríkisaðila í A-hluta.
    Hér verður fyrst gerð grein fyrir meginbreytingum sem varða tekjuhlið frumvarpsins. Þá er gerð grein fyrir þeim breytingum sem lagðar eru til á öðrum greinum og sundurliðunum, þ.e. sundurliðun 2, Fjármál ríkisaðila í A-hluta, 2. gr., sjóðstreymi ríkissjóðs, 5. gr. frumvarpsins um lántökur, endurlán og ríkisábyrgðir, og breytingum á sundurliðun 3 og 4, þ.e. Fjárreiðum ríkisfyrirtækja og lánastofnana.
    Í frumvarpinu var gerð ráð fyrir nýjum tekjuöflunaraðgerðum en útfærslu þeirra var ekki lokið þegar frumvarpið var kynnt í byrjun október. Nánari útfærsla þessara aðgerða hefur nú séð dagsins ljós í formi skattfrumvarpa. Þau tekjuöflunaráform sem var að finna í frumvarpinu hafa hins vegar tekið töluverðum breytingum í átt til lækkunar.
    Tekjuáætlun frumvarpsins hljóðaði upp á 468 milljarða kr., en sú áætlun hefur nú verið lækkuð um tæpa 10 milljarða kr. eða í 459 milljarða kr. Á greiðslugrunni er lækkunin heldur meiri eða tæpir 13 milljarðar kr., úr 456 milljörðum kr. í 443 milljarða kr. Skatttekjurnar hafa lækkað nokkru meira, eða um tæpa 12 milljarða kr. á rekstrargrunni en 15 milljarða kr. á greiðslugrunni.
    Í endurskoðaðri tekjuáætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis er gert ráð fyrir að tekjur verði 458.729,8 m.kr. sem er 9.515,2 m.kr. lækkun frá frumvarpinu. Tekjujöfnuður verður neikvæður sem nemur 101.754,7 m.kr. sem er 14.396,3 m.kr. aukning á halla.


SKÝRINGAR VIÐ BREYTINGARTILLÖGUR
VIÐ SUNDURLIÐUN 2 ÁN MILLIFÆRSLNA



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




SKÝRINGAR VIÐ BREYTINGARTILLÖGUR
VIÐ SUNDURLIÐUN 2, MILLIFÆRSLUR



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



SKÝRINGAR VIÐ BREYTINGARTILLÖGU VIÐ 2. OG 5. GR.

    
     Við a-lið 2. gr.
    Í a-lið er 50 milljarða kr. lækkun á fyrirhuguðum lánveitingum til Seðlabanka Íslands til að styrkja gjaldeyrisvaraforða bankans. Fyrir liggur að ekki verður af láni frá Rússlandi en á móti kemur útborgun á láni Norðurlanda sem frestað var að taka í ár.
    Í b-lið er gert ráð fyrir 20 milljarða kr. eiginfjárframlögum til sparisjóðakerfisins þar sem allt eins má reikna með að niðurstaða í þeim málum dragist fram yfir næstu áramót.
    Í c-lið er lögð til breyting á heiti liðarins þar sem nú er gert ráð fyrir að eiginfjárframlög til sparisjóðakerfisins verði sérgreind.
     Við b-lið 2. gr.
    Í a-lið er gert ráð fyrir jafngildi 50 milljarða kr. lækkunar á lántökum til Seðlabanka Íslands eins og fyrr greinir.
    Í b-lið er 40 milljarða kr. aukning á útgáfu ríkisskuldabréfa til fjármögnunar á lánsfjárþörf að öðru leyti en til að styrkja gjaldeyrisvaraforðann.
    Breytingar á 5. gr. eru afleiddar breytingar í samræmi við þær breytingar á sjóðstreymi sem hér hefur verið gerð grein fyrir.


SKÝRINGAR VIÐ BREYTINGARTILLÖGU VIÐ B- OG C-HLUTA

Sundurliðun 3 (Fjármál ríkisfyrirtækja í B-hluta).

22 Mennta- og menningarmálaráðuneyti

201      Happdrætti Háskóla Íslands.
        Lagt er til að Happdrætti Háskóla Íslands verði heimilað að ráðstafa 185 m.kr. hærra fjárframlagi til framkvæmda og viðhalds fasteigna Háskóla Íslands en gert er ráð fyrir í frumvarpinu, samtals 600 m.kr. Handbært fé happdrættisins í árslok 2010 lækkar sem nemur hækkun framlagsins. Framlagið færist jafnframt á tekjuhlið ríkissjóðs þannig að þessi breyting hefur ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs.

29 Fjármálaráðuneyti

101      Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.
        Lögð til 500 m.kr. hækkun á arðgreiðslu frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Handbært fé fyrirtækisins í árslok lækkar sem nemur hækkun arðgreiðslunnar. Arðgreiðslan færist jafnframt á tekjuhlið ríkissjóðs þannig að afkoma ríkissjóðs batnar sem því nemur.

Sundurliðun 4 (Fjármál lánastofnana í C-hluta).

42 Mennta- og menningarmálaráðuneyti

872      Lánasjóður íslenskra námsmanna.
        Lagt er til að framlag úr A-hluta ríkissjóðs til Lánasjóðs íslenskra námsmanna lækki um 200 m.kr. og verði 8.985 m.kr. Útlit er fyrir að eiginfjárstaða Lánasjóðsins verði betri í árslok 2009 en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir, einkum vegna þess að afborganir námslána hafa skilað sér betur á árinu en búist hafði verið við. Sjóðurinn þarf því ekki jafnmikið framlag úr A-hluta ríkissjóðs til að viðhalda eiginfjárstöðu sinni og gert var ráð fyrir í frumvarpinu.

    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum þeim sem skýrðar
hafa verið og gerð er tillaga um á sérstökum þingskjölum.

Alþingi, 11. des. 2009.



Guðbjartur Hannesson,


form., frsm.


Björn Valur Gíslason.


Ásmundur Einar Daðason.



Sigmundur Ernir Rúnarsson.


Þuríður Backman.


Oddný G. Harðardóttir.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Fylgiskjal I.


Álit



um 1. gr. frv. til fjárlaga fyrir árið 2010, sbr. sundurliðun 1, og áhrif skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs.

Frá 1. minni hluta efnahags- og skattanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Rafn Sigurðsson, Elínu Guðjónsdóttur, Sigurð Guðmundsson, Maríönnu Jónasdóttur og Ingibjörgu Helgu Helgadóttur frá fjármálaráðuneyti, Marinó Melsted og Björn Ragnar Björnsson frá Hagstofu Íslands, Gunnar Gunnarsson frá Seðlabanka Íslands og Björn Rúnar Guðmundsson frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti.
    Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs árið 2010 verði neikvæð um 87,4 milljarða kr., heildartekjur verði 468,2 milljarðar kr. og þar af nemi skatttekjur um 422,9 milljörðum kr. Endurskoðuð áætlun ársins 2009 gerir ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs í ár verði neikvæð um 182,3 milljarða, heildartekjur verði 407 milljarðar kr. og skatttekjur 350 milljarðar kr.
    Nefndin ræddi tekjuáætlun fjárlagafrumvarpsins og þær þjóðhagsforsendur sem liggja henni til grundvallar. Fjármálaráðuneytið reiknar þar með að samdráttur á árinu 2010 verði 1,9% af landsframleiðslu. Búist er við áframhaldandi samdrætti í einkaneyslu en að utanríkisviðskipti og stóriðjuframkvæmdir vegi þar upp á móti. Er því spáð að afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum verði 0,8% af landsframleiðslu á árinu 2010. Þá er gert ráð fyrir að atvinnuleysi nái hápunkti og verði 10,6% af vinnuafli og að verðbólga fari lækkandi og verði 5% að meðaltali. Óvissu hefur gætt um peningamál, fjárhagsstöðu heimila og fyrirtækja, endurreisn bankakerfisins, stóriðjuframkvæmdir og skuldbindingar við önnur ríki.
    Undirstrikað var á fundum nefndarinnar að lágt gengi hefði framkallað aðlögun í hagkerfinu til hagsbóta fyrir útflutningsgreinar og aukið eftirspurn eftir innlendri framleiðslu á kostnað erlendrar. Samfara lækkun gengisins hefði einkaneysla og fjárfesting dregist saman vegna hækkandi verðlags, rýrnunar eignaverðs og mikillar skuldabyrði. Þá hefðu stóriðjuframkvæmdir tafist. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefði ekki rýrnað eins mikið á þessu ári og spár hefðu gert ráð fyrir. Einnig hefði atvinnuleysi verið minna en búist var við.
    Fram kom á fundum nefndarinnar að spár fjármálaráðuneytisins væru að mestu samhljóða mati Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ber þessum aðilum saman um að landsframleiðsla hafi dregist minna saman en áætlanir gerðu ráð fyrir og að efnahagsbatinn verði aðeins hraðari.
    Í þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins kemur fram að mikillar óvissu hafi gætt um skuldastöðu þjóðarbúsins og hins opinbera en um það hefur efnahags- og skattanefnd fjallað sérstaklega í tengslum við Icesave-málið (76. mál). Eitt þriggja meginmarkmiða efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er að koma á jöfnuði í ríkisfjármálum.
    Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að tekjuáætlun fyrir árið 2010 sé byggð á áætlun um tekjur ársins 2009, þjóðhagsspá fyrir árið 2010 og áætlun fjármálaráðherra um jöfnuð í ríkisfjármálum 2009–2013. Sérstakar tekjuöflunaraðgerðir setja mark sitt á fjárlagafrumvarpið og koma þær fram í frumvörpum sem nú eru til umfjöllunar í efnahags- og skattanefnd, sbr. mál nr. 239 (ráðstafanir í skattamálum), 256 (tekjuöflun ríkisins) og 257 (umhverfis- og auðlindaskattur). Þessum frumvörpum fylgir umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytis.
    Nefndin fékk kynningu á uppfærðri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytis 2009 og 2010. Þar er m.a. gert ráð fyrir minni samdrætti í einkaneyslu, þ.e. 4,3% í stað 6,1%, og minni aukningu í fjárfestingu, þ.e. 4,8% í stað 10,2%. Vísað var til þess að umfang tekjuskatts einstaklinga væri minna en í upphaflegri spá og að búast mætti við minni stóriðjuframkvæmdum.
    Nefndin ræddi áhrif skattabreytinga á tekjuöflun ríkissjóðs. Var vísað til bls. 197 í fjárlagafrumvarpinu og greint frá mögulegum frávikum frá fyrirhuguðum tekjuöflunaráformum. Fram kom að heildartekjur væru nú áætlaðar um 9,5 milljörðum kr. minni en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu og þar af drægjust heildarskatttekjur saman um 11,5 milljarða kr. Þar réði mestu að tekjur af tekjuskatti einstaklinga og umhverfis- og auðlindagjaldi væru áætlaðar mun minni en gert hafi verið ráð fyrir, um 20 milljarðar kr. í fyrra tilvikinu en rúmlega 10 milljarðar kr. í hinu síðara. Þá væru viðbótartekjur ríkissjóðs vegna breytinga á virðisaukaskatti taldar rúmlega 2 milljörðum kr. minni en í fjárlagafrumvarpinu. Á móti vægi fyrirhuguð hækkun atvinnutryggingagjalds, um 12 milljarðar kr., og upptaka auðlegðarskatts, um 3,5 milljarðar kr., auk þess sem gert væri ráð fyrir hækkun á aukatekjum ríkissjóðs um 1,5 milljarða kr. og viðbótarheimild til útgreiðslu séreignarsparnaðar sem næmi um 5 milljörðum kr. Loks væri gert ráð fyrir 1,2 milljarða tekjuskatti vegna fyrirframgreiðslu stóriðjufyrirtækja.
    Það er álit 1. minni hluta að þær breytingar sem gerðar eru á tekjuhlið fjárlaga frá framlögðu frumvarpi horfi til betri vegar. 1. minni hluti fagnar því að unnt hafi verið að draga verulega úr þörf fyrir hækkanir á tekjuskatti einstaklinga vegna þess að horfur í efnahagsmálum eru betri en þegar frumvarpið var lagt fram. Nokkrar breytingar hafa orðið á þjóðhagsforsendum síðan frumvarpið var lagt fram í október. Fjárfesting mun ekki aukast jafn mikið og spáð var og samdráttur í samneyslu er áætlaður meiri, en á hinn bóginn er áætlað atvinnuleysi minna og reiknað er með að samdráttur í einkaneyslu verði ekki jafn mikill. Vissulega er óvissa um einstaka þætti eins og t.d. verðteygni áhrifa í neyslusköttum en samhljómur ólíkra aðila um þjóðhagsforsendur styrkir það mat 1. minni hluta að líkur séu á að tekjuspáin fái staðist. Í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er geta forsendur breyst og gefið tilefni til frekari umfjöllunar efnahags- og skattanefndar milli annarar og þriðju umræðu.

Alþingi 11. des. 2009.

Helgi Hjörvar, form.,
Anna Pála Sverrisdóttir,
Ögmundur Jónasson.




Fylgiskjal II.


Álit



um 1. gr. frv. til fjárlaga fyrir árið 2010, sbr. sundurliðun 1, og áhrif skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs.

Frá 2. minni hluta efnahags- og skattanefndar.



    Í kjölfar hrunsins skruppu skattstofnar ríkisins gríðarlega saman vegna lækkunar launa, minni hagnaðar, samdráttar í fjárfestingu og minni neyslu. Á sama tíma jukust útgjöld ríkisins vegna kostnaðar við hrunið, aukins atvinnuleysis og aukins vaxtakostnaðar. Augljóst er að til margvíslegra aðgerða þarf að grípa til að leiðrétta þessa stöðu. Ríkisstjórnin hefur kosið þá leið að skera niður útgjöld og hækka skatta.
    Í samstarfsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda frá nóvember 2008 er gert ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með 150 milljarða kr. halla á árinu 2009. Gert er ráð fyrir að frumjöfnuður ríkissjóðs verði jákvæður á árinu 2011 og tekjujöfnuður verði jákvæður árið 2013.
    Nú liggur fyrir að halli ársins 2009 er miklu meiri en gert er ráð fyrir í samstarfsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og stjórnvalda. Þannig er nú gert ráð fyrir að hallinn á þjóðhagsgrunni verði 253 milljarðar kr. á árinu. Stafar hækkunin af því að stjórnvöld hafa látið undir höfuð leggjast að framfylgja fjárlögum ársins af nægjanlegri festu eins og Ríkisendurskoðun hefur bent á. Þá eru verðbætur á lán ríkisins hjá Seðlabankanum miklar – um 23 milljarðar kr. – og áfallnir vextir af Icesave lánunum um 40 milljarðar kr. Agaleysi við framkvæmd fjárlaga hefur því myndað 40 milljarða kr. umframhalla á tekjugrunni.
    Ríkisstjórnin hefur kosið að mæta verkefninu með því að hækka skatta og kynna til sögunnar nýja, svo sem umhverfis- og auðlindaskatta. Þá eru jafnframt í frumvarpi um tekjuöflun ríkisins lagðar til mjög viðamiklar breytingar á tekjuskattskerfinu, bæði því sem snýr að fyrirtækjum og heimilum. Þá er aflagður skattur, eignaskattur, endurvakinn og skírður auðlegðarskattur.
    Ljóst er að þjóðhagsforsendur fjárlagfrumvarpsins eins og þær birtast í fyrri hluta þess eru óraunhæfar enda voru þær settar fram áður en fyrir lá hvernig tekjuöflun ríkisins yrði endanlega háttað og sætir það furðu. Gert er ráð fyrir að eftirspurn muni dragast verulega saman á næsta ári. Þannig er því spáð að einkaneysla muni einungis dragast saman um 6,1% þrátt fyrir að ráðstöfunartekjur á mann muni dragast saman um 7% og kaupmáttur um 11,4%. Þá er gert ráð fyrir að samneysla muni dragast saman um 3,6%. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir að fjárfesting aukist um 4,8% en sú spá virðist ekki eiga sér neina stoð í raunveruleikanum eins og hann lítur út um þessar mundir. Þá er gert ráð fyrir að þjóðarútgjöld muni dragast saman um 3%.
    Gert er ráð fyrir að beinir og óbeinir skattar muni hækka um rúma 65 milljarða kr. á næsta ári og er ljóst að það mun hafa neikvæðari eftirspurnaráhrif en gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu vegna eðlis þeirra skatta sem lagðir verða á ef tillögur ríkisstjórnarinnar ná fram að ganga. Samdráttur í eftirspurn mun minnka skattstofna. Því er það álit 2. minni hluta að forsendur tekjuhlutans séu byggðar á afar ótraustum grunni og tekjur muni aukast minna en að er stefnt.
    Í eðli sínu er tryggingagjald skattur á atvinnu þar sem hann leggst á laun allra starfsmanna. Sú mikla hækkun sem boðuð er á tryggingagjaldi leiðir til þess að dýrara verður fyrir fyrirtæki að hafa fólk í vinnu sem leiðir til þess að færra fólk verður ráðið og meiri hætta er á uppsögnum. Hjá illa stöddum fyrirtækjum kann þessi skattahækkun að verða kornið sem fyllir mælinn. Margvíslegir skattar á áhættufé eru hækkaðir. Áhættufé er nauðsynlegt fyrir nýsköpun og fjárfestingar í atvinnulífi, sérstaklega þegar lánardrottnar eru áhættufælnir eins og nú um stundir. Aðgangur fyrirtækja að áhættufé er forsenda þess að ný störf myndist. Frumvörpin beinast að því er virðist gegn myndun nýrra starfa þótt það hafi eflaust ekki verið tilgangurinn. Þetta gæti aukið atvinnuleysi sem aftur skaðar afkomu ríkissjóðs. Þá leiða nýir skattar á kolefni og orku til aukins kostnaðar fyrir heimili og fyrirtæki sem kemur fram í minni eftirspurn og rýrnandi skattstofnum auk þess sem tilviljanakennd og fyrirvaralaus upptaka skattanna kann að skaða ímynd Íslands sem lands með stöðugt stjórnarfar.
    Á heildina litið virðast forsendur tekjuhliðar fjárlagafrumvarpsins óraunhæfar enda voru þær gefnar áður en fyrir lá hvernig skattheimtu yrði háttað á næsta ári sem er bæði ófaglegt og furðulegt í meira lagi.
    Nú liggja fyrir tillögur ríkistjórnarinnar um hvernig skattheimtu verður háttað á næsta ári. Tillögurnar setja allar forsendur í fjárlagafrumvarpinu í algjört uppnám. 2. minni hluti efnahags- og skattanefndar gerir það því að tillögu sinni að þjóðhagsspá sem myndar grunninn að tekjuáætlun ríkissjóðs verði endurgerð með nýjar forsendur fyrir skattlagningu að leiðarljósi. Jafnframt bendir 2. minni hluti fjárlaganefnd á að breytingar á skattlagningu séreignarsparnaðar (sem lagðar eru til í þskj. 255) geta frestað og komið í veg fyrir boðaðar skattahækkanir. Þá gæfist betra tóm til að vinna að tillögunum en hraðinn á þessum flóknu skattabreytingum er hættulega mikill. Skattlagning séreignarsparnaðar snýr eingögu að mjög fáum skattgreiðendum og er vel afmörkuð og einföld. Sú ráðstöfun mundi leiða til mun minni eftirspurnaráhrifa en boðuð leið ríkisstjórnarinnar og um leið tryggari skattgrunna og raunhæfari fjárlaga.

Alþingi, 11. des. 2009.

Tryggvi Þór Herbertsson,
Pétur H. Blöndal.




Fylgiskjal III.


Álit



um 1. gr. frv. til fjárlaga fyrir árið 2010, sbr. sundurliðun 1, og áhrif skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs.

Frá 3. minni hluta efnahags- og skattanefndar.



    3. minni hluti hefur farið vandlega yfir tekjuáætlun fjárlagafrumvarpsins og þær þjóðhagsforsendur sem liggja henni til grundvallar. Að mati 3. minni hluta eru þær grundvallarbreytingar sem gerðar eru á skattkerfinu að mörgu leyti mjög til bóta og mikilvægur áfangi til leiðréttingar á þeim losarabrag sem verið hefur á skattumhverfi á Íslandi undanfarin ár. Að auki eru þær tímabær leiðrétting á þeim ábyrgðarlausu skattalækkunum sem gerðar voru á hámarki þensluskeiðsins síðasta og virkuðu sem olía á eld þenslunnar.
    Fjölþrepa virðisaukaskattkerfi þar sem markmiðið er að virðisaukaskattur á matvæli sé sem lægstur er æskilegt og þær breytingar sem nú eru gerðar með því að flokka t.d. gosdrykki ekki sem matvæli eru til bóta þótt 3. minni hluti telji að tveggja þrepa kerfi með einu lágu þrepi, um 7%, fyrir matvæli og öðru sem er hærra eða um 20% fyrir allt annað væri til bóta vegna mikillar einföldunar.
    Fjölþrepa tekjuskattskerfi er einnig að mörgu leyti æskilegt og leiðir til meiri jöfnuðar þótt alltaf þurfi að varast að ganga of langt í að leggja einhvers konar hátekjuskatt á of lágar tekjur sem og að hafa skattprósentuna það háa að hvatinn til vinnu dofni um of.
    Fjölmargir hagsmunaaðilar og sérfræðingar komu fyrir nefndina og lýstu áhyggjum af auknu flækjustigi skattkerfisins með fjölgun skattþrepa. Eins vöknuðu upp efasemdir um innheimtu eftiráskatts sem verður til vegna vanáætlunar tekna sem gera þarf upp við álagningu, en fram kom að heimtur eftiráskatts eru oft rýrar. Einnig var varað við hugsanlegum vandræðum vegna þess knappa tíma sem til stefnu er til að breyta þeim kerfum sem notuð eru við útreikning og innheimtu skatta. Þessi tímaþröng er mikið áhyggjuefni og erfitt að sjá annað en að gerð verði mörg mistök um áramót og á fyrstu mánuðum næsta árs vegna þeirra miklu breytinga sem þarf að gera á tölvukerfum. Slík vandræði geta gert það að verkum að tiltrú manna á kerfið veikist og erfitt og tímafrekt er að fá nýtt skattkerfi sem fer af stað á brauðfótum til að standa almennilega í lappirnar. Veik tiltrú manna á skattkerfi eykur einnig til muna vilja til undanskota. Því er að mati 3. minni hluta vel þess virði að gaumgæfa hvort hægt sé að fresta þessum breytingum þannig að meiri tími gefist til undirbúnings. Hins vegar telur 3. minni hluti að aukið flækjustig og eftiráinnheimta þurfi ekki að verða vandamál vegna þess tækniþróaða umhverfis sem efnahagslífið býr við.
    Hvað varðar áhrif skattbreytingana á efnahagslífið alment og þjóðarhag telur 3. minni hluti að sá rökstuðningur sem birtist í kaflanum „Áhrif skattheimtu“ í frumvarpi til laga um tekjuöflun ríkisins (þskj. 292 – 256. mál) gangi ekki upp við þær aðstæður sem uppi eru í íslenskum efnahagsmálum. Rökstuðningurinn byggist á keynesískum kenningum hagfræðinnar þar sem gengið er út frá því að ríkisútgjöld sem fjármögnuð eru með skattheimtu hafi örvandi áhrif á hagkerfið í niðursveiflu (samdrætti) og talið er til miskilnings að aukin skattheimta dragi úr eftirspurn í hagkerfinu. Einnig er því haldið fram að aukning á útgjöldum ríkissjóðs muni auka eftirspurn í hagkerfinu meira en sem nemur samdrætti einkaneyslu vegna samsvarandi skattheimtu. Rök þessi eru góð og gild við ákveðnar aðstæður og hafa reynst vel gegnum tíðina sem sveiflujafnandi og kreppuminnkandi aðgerðir og kenningin sem slík gengur upp í reynd þótt ýmislegt beri að varast við notkun aðferðanna, sérstaklega hvað varðar þá freistingu að ofgera notkun þeirra og varanleika.
    Undir þeim kringumstæðum sem íslenskt efnahagslíf býr við er þess hins vegar ekki að vænta að um verði að ræða samsvarandi eða meiri aukningu eftirspurnar en sem nemur skattheimtunni vegna bágrar skuldastöðu ríkissjóðs og takmarkaðs svigrúms til útgjalda. Stór hluti ríkisútgjalda fer í að greiða vexti af lánum og allar auknar tekjur sem falla til vegna hærri skatta fara beint í þann útgjaldalið. Einnig er á sama tíma um að ræða umtalsverðan niðurskurð í ríkisútgjöldum með tilheyrandi samdrætti og uppsögnum starfsfólks í stórum stíl, þannig að í raun er æpandi þversögn í beitingu þessara aðferða sem í rökstuðningi frumvarpsins eru sagðar auka eftirspurn.
    Því er hætt við að þessar skattahækkanir muni einfaldlega leiða til enn frekari samdráttar en þegar hefur orðið þar sem þær þýða að ráðstöfunartekjur heimila munu skerðast. Í þessu sambandi er vert að benda á að ef hugmyndin er að auka eftirspurn og einkaneyslu, þá er myndarleg niðurfærsla á verðtryggðum höfuðstól íbúðalána heimila líklegri til að leiða til þeirrar auknu eftirspurnar sem frumvarpið vill ná fram og hafa góð sálræn áhrif á heimilin þar sem bjartsýni þeirra á framtíðina eykst. Aukin skattheimta í dag hefur hins vegar þveröfug áhrif hvað þetta varðar.
    Um það er ekki deilt að staða ríkissjóðs er mjög slæm og einhvern veginn þarf að reyna að brúa þann gríðarlega halla sem blasir við. Ríkisstjórnin hefur valið svokallaða blandaða leið þar sem útgjöld eru skorin niður og skattar hækkaðir á almenning og fyrirtæki, leið sem 3. minni hluti telur við þessar aðstæður bæði óheppilega og í raun óþarfa.
    Ljóst er að tekjuskattstofnar ríkissjóðs hafa rýrnað mjög og sumir allt að því horfið. Almennar launatekjur og tryggingagjaldið eru stöðugir og tiltölulega auðinnheimtir skattstofnar og því freistandi að fara þá leið í leit að tekjum fyrir ríkissjóð. Í því efnahagsástandi sem við búum við nú eru þessir skattstofnar hins vegar viðkvæmir og geta auðveldlega rýrnað að upphæð og fjölda greiðenda ef brottflutningur frá landinu heldur áfram.
    Auknir skattar á heimilin eru erfið viðbót við þær hremmingar sem þegar hafa dunið á þeim og að sama skapi er tryggingagjaldið í raun gjald fyrir að hafa fólk í vinnu sem getur takmarkað enn frekar vilja fyrirtækja til mannaráðninga. Því telur 3. minni hluti brýnt að leita annarra leiða til að rétta við hag ríkissjóðs en þeirra sem fyrirhugaðar eru í fyrirliggjandi frumvarpi. 3. minni hluti leggur því til að í stað þeirra tekjuskattshækkana og niðurskurðar útgjalda til heilbrigðis-, velferðar- og menntamála sem gert er ráð fyrir í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi og frumvörpum um tekjuöflun ríkisins skuli leitast við að afla ríkissjóði tekna sem hér segir:
    Í fyrsta lagi er lagt til að tekið verði upp gistináttagjald sem leggist á hótel- og gistihúsarekstur. Gjald þetta verði 1.000 kr. (5,5 evrur) á gistinótt. Miðað við gistinætur ársins 2008 (sbr. skýrslur Hagstofu) gæti gjald þetta skilað tekjum upp á um 2,7 milljarða kr. á ári. Lagt er til að dregið verði úr fyrirhugaðri hækkun tekjuskatts til samræmis við þetta.
    Í öðru lagi er lagt til að tekið verði upp auðlindagjald á raforkusölu til stóriðju í stað sérstaks skatts af allri seldri raforku. Gjald þetta verði 1 kr. á kílóvattstund af seldri raforku. Miðað við tölur Orkustofnunar um raforkusölu til stóriðju gæti þetta gjald skilað tekjum upp á u.þ.b. 12,4 milljarða kr. á ári. Þar sem raforkusala til Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga er meitluð í stein hvað verðbreytingar varðar verði leitast við útfæra auðlindagjaldið sem hlutfall af útflutningsverðmæti verksmiðjunnar þannig að það nemi samsvarandi upphæð og 1 kr. á selda kílóvattstund. Lagt er til að dregið verði úr fyrirhugaðri hækkun tekjuskatts til samræmis við þetta.
    Í þriðja lagi er lagt til að tekið verði upp auðlindagjald á úthlutaðar aflaheimildir til fiskveiða. Gjald þetta verði að meðaltali 50 kr. á úthlutað kíló. Miðað við úthlutaðar aflaheimildir ársins 2008 (553.600 tonn) gæti gjaldið skilað tekjum upp á u.þ.b. 27,7 milljarða kr. á ári. Lagt er til á móti að fyrirhuguð hækkun tryggingagjalds falli niður og að því sem eftir stendur af tekjunum verði varið til styrkingar heilbrigðis-, velferðar- og menntamála.
    Slík skattheimta sem að ofan greinir er hlutlaus fyrir heimilin og leggst á þær greinar atvinnulífsins sem standa best allra í dag vegna hruns á gengi krónunnar. Hér er einnig um að ræða réttláta skattlagningu í þeim skilningi að þessar atvinnugreinar nota auðlindir landsins án endurgjalds, auðlindir sem eru sameign allrar þjóðarinnar. Auk þess er miklu auðveldara að innheimta auðlindagjald með þessum hætti heldur en með einhverjum hugmyndum um tekjuskatt eða veiðileyfagjald sem hlutfall af hagnaði.
    3. minni hluti vill að lokum lýsa undrun sinni á þeim vinnubrögðum sem viðgengist hafa við gerð fjárlaga, hvort sem um er að ræða efnahags- og skattanefnd eða fjárlaganefnd. Viðamiklar breytingar á viðkvæmum tímum eru mjög varasamar og ber ekki að afgreiða með þeim hætti sem gert er. Þótt erfitt geti verið að bæta úr því sem komið er mundu tillögur 3. minni hluta um nýja skattstofna gefa öllum hlutaðeigandi nægilegt svigrúm til að undirbúa betur breytingar á tekjuskattskerfinu og virka mun jákvæðar á almenning og fyrirtæki í landinu heldur en þær fyrirhuguðu skattahækkanir sem frumvörpin gera ráð fyrir.

Alþingi, 11. des. 2009.

Þór Saari.




Fylgiskjal IV.


Álit



um 1. gr. frv. til fjárlaga fyrir árið 2010, sbr. sundurliðun 1, og áhrif skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs.

Frá 4. minni hluta efnahags- og skattanefndar.



    Efnahags- og skattanefnd hefur fundað frá morgni til kvölds síðustu daga vegna umfangsmikilla skattabreytinga og tekjuhliðar fjárlagafrumvarpsins. Þeirri yfirferð er ekki lokið og því getur efnahags- og skattanefnd ekki veitt tilhlýðilega umsögn eðli málsins samkvæmt.
    Algjör glundroði er í vinnubrögðum Alþingis á síðustu dögum fyrir áramót. Fyrirhugaðar breytingar á skattkerfinu geta haft ófyrirséðar afleiðingar fyrir tekjuhlið fjárlaganna enda hefur komið fram hjá umsagnaraðilum að verið sé að gera skattkerfið dýrara og óskilvirkara sem mun skila ríkissjóði lægri tekjum en núverandi staðgreiðslukerfi. Það er með öllu óásættanlegt að nú sé verið, á nokkrum dögum, að gera grundvallarbreytingar á íslenska skattkerfinu sem hefur verið þekkt fyrir einfaldleika. Allflestir umsagnaraðilar hafa gagnrýnt vinnulag stjórnarflokkanna og varað við því að hægt sé að gera mikil mistök undir mikilli tímapressu. Þessi hluti málsins setur tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins í mikla óvissu.
    Vegna tímaskorts og ófullnægjandi yfirferðar um tekjuhliðina af hálfu efnahags- og skattanefndar er ekki hægt að gera fullnægjandi grein fyrir öllum hlutum er snerta tekjuhliðina, enda hefur ekki verið rætt við alla umsagnaraðila um frumvarpið. Forsendur tekjuhliðar eru vafasamar svo ekki sé meira sagt og verða nú reifuð nokkur álitamál.
     *      Samdráttur einkaneyslu er áætlaður 4,3% en kaupmáttarskerðing almennings er áætluð yfir 10%. Augljóslega ganga þessar áætlanir ekki upp – nema stjórnvöld geri ráð fyrir enn meiri skuldsetningu heimilanna sem eru nú þegar ofurskuldsett.
     *      Ekki er gert ráð fyrir flutningi vinnuafls frá landinu á næsta ári og því eru skatttekjur ríkissjóðs augljóslega ofmetnar. Það er alþekkt staðreynd að í kreppu verður tilflutningur á fólki. Íslensk þjóð er vel menntuð og einhverjir munu leita tækifæra á erlendri grundu.
     *      Verði grundvallarbreytingar gerðar á skatttkerfinu er ljóst að milljarðar króna munu glatast í innheimtu skatta.
     *      Nýtt virðisaukaskattþrep og hinn svokallaði sykurskattur mun óhjákvæmilega fækka störfum í matvælageiranum – svo skiptir hundruðum starfa.
     *      Umsagnaraðilar hafa einnig bent á að hækkun áfengisgjalds mun ekki skila þeim tekjum sem áætlaðar eru. Smygl og bruggframleiðsla eykst og því er ljóst að stórt neðanjarðarhagkerfi er að verða til með auknum álögum.
     *      Breytingar á skattumhverfi atvinnulífsins, sem eru í algjörri andstöðu við atvinnurekendur, setja stöðugleika á vinnumarkaði í hættu. Með breytingunum er endurreisn efnahagslífsins hamlað og boðað samráð virt að vettugi.
    Hér eru einungis nokkur álitamál reifuð undir mikilli tímapressu. Álit þetta er samið meðan á fundi efnahags- og skattanefndar stendur. Vinnubrögð Alþingis hafa ekki verið óvandaðri og jafnhandahófskennd í lengri tíma – ef nokkurn tíma! Ljóst er að mikil vinna bíður efnhags- og skattanefndar á milli 2. og 3. umræðu um fjárlagafrumvarpið. Það hversu seint skattbreytingar ríkisstjórnarinnar kom fram eru vítaverð vinnubrögð og þingi og þjóð ekki samboðin.

Alþingi, 11. des. 2009.

Birkir Jón Jónsson.



Fylgiskjal V.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (00 Æðsta stjórn ríkisins, 01 Forsætisráðuneyti og 06 Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti).

Frá meiri hluta allsherjarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um þá hluta frumvarps til fjárlaga sem eru á málefnasviði hennar, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, og bréf fjárlaganefndar frá 19. október 2009. Á fund nefndarinnar komu Óðinn Helgi Jónsson og Eydís Eyjólfsdóttir frá forsætisráðuneyti, Haukur Guðmundsson og Jón Magnússon frá dómsmála- og mannréttindaráðuneyti og Karl M. Kristjánsson frá skrifstofu Alþingis.

Æðsta stjórn ríkisins.
    Nefndin fjallaði um æðstu stjórn ríkisins, þá sérstaklega Alþingi, stofnanir þess og dómstólana. Laun hæstaréttardómara voru lækkuð samkvæmt ákvörðun kjararáðs 10. mars 2009 um allt að 15%, eins og laun alþingismanna og ráðherra, en til viðbótar er Hæstarétti gert að skera niður um 10% og því er í reynd um tvöfaldan niðurskurð að ræða hjá réttinum. Meiri hlutinn telur mjög varhugavert að lækka framlög til dómstóla, sérstaklega þegar litið er til væntanlegrar aukningar dómsmála í tengslum við bankahrunið haustið 2008. Meiri hlutinn styður endurskoðun á skipulagi dómstóla samkvæmt þeim hugmyndum sem dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur lagt fram enda starfsálag og málafjöldi mismikill milli embætta. Þó vill meiri hlutinn vekja athygli á þeim beiðnum sem liggja fyrir ráðuneytinu af hálfu Hæstaréttar, svo og að auka þarf fjármagn til dómstóla almennt svo að þeir geti staðið undir lögbundnu hlutverki sínu og tryggt eðlilegan málshraða.
    Fyrir nefndinni kom fram að fjárveitingar til Alþingis hefðu lækkað um 215 m.kr. eða 10% frá árinu 2008 til 2009. Aðgerðirnar fólu m.a. í sér að laun þingmanna voru lækkuð, reglur um töku varamanna inn á þing voru hertar, aðstoðarmönnum þingmanna var sagt upp, heimildir til ferða fastanefnda voru þrengdar, ferðaheimildir alþjóðastarfs þingmannanefnda þrengdar sem og aðhalds gætt í rekstri skrifstofu Alþingis, sérstaklega launaútgjöldum og tengdum kostnaði með því að ráða ekki starfsmenn í afleysingar vegna veikinda, fæðingarorlofs o.fl. Þá komu einnig til útgjöld í tengslum við mótmælin sem urðu í framhaldi af bankahruninu og í tengslum við kosningar. Lækkun fjárveitinga til Alþingis fyrir árið 2010 er 5% eða 100 m.kr. Sú fjárhæð endurspeglar ekki að öllu leyti þá raunlækkun á föstum kostnaði sem hefur orðið vegna tímabundinnar fjárveitingar að fjárhæð 40 m.kr. til að halda þing Norðurlandaráðs í Reykjavík á næsta ári. Meiri hlutinn telur að Alþingi hafi með niðurskurði útgjalda á þessu ári og í tillögum sínum fyrir næsta fjárlagaár tekið mjög alvarlega niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar og bendir á að varhugavert sé að ganga lengra í niðurskurði ef Alþingi á að geta sinnt hlutverki sínu með sóma. Meiri hlutinn bendir einnig á að við samanburð virðist sem sparnaður hjá Alþingi sé meiri en sumra aðalskrifstofa ráðuneyta.
    Raunlækkun til stofnana Alþingis, Ríkisendurskoðunar og umboðsmanns Alþingis er 10% sem er í samræmi við þá meginstefnu sem fylgt er í fjárlagafrumvarpi um lækkun frá fjárlögum 2009 hjá stjórnsýslu- og eftirlitsstofnunum, sem og ráðuneytum.

Forsætisráðuneyti.
    Heildargjöld forsætisráðuneytis árið 2010 eru áætluð 1.031 m.kr. á rekstrargrunni en frá dragast sértekjur að fjárhæð 31 m.kr. Rekstrargjöld ráðuneytisins að frádregnum sértekjum eru áætluð 1.000 m.kr. og lækka um 1.048 m.kr. frá fjárlögum 2009 sem skýrist af flutningi verkefna til annarra ráðuneyta og vegur þar þyngst flutningur Hagstofu Íslands til efnahags- og viðskiptaráðuneytis.
    Í frumvarpinu kemur fram að ráðuneytum og stofnunum ríkisins sé almennt ætlað að draga saman í rekstri um 10% frá fjárlögum 2009. Fram kom á fundum nefndarinnar að tekið hefði verið mið af þessu hjá forsætisráðuneyti og að niðurskurður þar hefði verið að meðaltali 8% í frumvarpinu, fyrir utan tilfærslu verkefna til annarra ráðuneyta.
    Raunlækkun forsætisráðuneytisins milli ára miðað við þau verkefni sem enn eru hjá ráðuneytinu eftir tilfærslurnar eru 7,17% fyrir utan sparnað sem ráðuneytið leggur til í upplýsingaverkefnum en sú lækkun deilist samkvæmt frumvarpinu á mörg ráðuneyti.
    Meiri hlutinn ræddi einnig um útgjöld til málefna upplýsingasamfélagsins sem er sameiginlegt verkefni allra ráðuneyta. Til verkefnisins var stofnað á árinu 1996 og hefur það verið í gangi alla tíð síðan. Kostnaður hefur verið allmikill og er það skoðun nefndarinnar að hægt sé að skera meira niður á þessum lið miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir. Á fjárlagalið 01-996-6.51 er varið 47 m.kr. til nýrra verkefna á vettvangi upplýsingasamfélagsins sem öll eru vistuð hjá forsætisráðuneyti. Þau verkefni eiga það sameiginlegt að vinna við þau er ekki hafin og því verður ekki um uppsagnir starfsmanna að ræða þótt þeim sé frestað. Meiri hlutinn leggur því til að þessi liður verði skorinn niður um 47 m.kr. Meiri hlutinn telur að þessa fjármuni megi t.d. nýta til meðferðargangs Litla-Hrauns sem ekki er fjárveiting fyrir samkvæmt fjárlagafrumvarpi.

Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti.
    Heildargjöld dómsmála- og mannréttindaráðuneytis árið 2010 eru áætluð 26.215 m.kr. á rekstrargrunni en frá dragast sértekjur að fjárhæð 1.673 m.kr. Rekstrargjöld ráðuneytisins að frádregnum sértekjum eru áætluð 19.418 m.kr. og lækka um 1.363 m.kr. að raungildi frá fjárlögum þessa árs.
    Á fundum nefndarinnar gerðu fulltrúar ráðuneytisins grein fyrir því hvernig ráðuneytið hygðist mæta 10% hagræðingarkröfu samkvæmt frumvarpinu en útfærslan er misjöfn eftir málaflokkum. Þannig er skorið niður um 12% hjá aðalskrifstofu ráðuneytisins, 6% hjá dómstólunum og 8,2% hjá löggæslustofnunum og í öryggismálum. Það er skoðun nefndarinnar að unnið hafi verið sérstaklega vel að útfærslu niðurskurðartillagna í ráðuneytinu og í öllu farið að tilmælum um niðurskurð og sparnað. Meiri hlutinn telur því að ákveðnir þættir í starfsemi ráðuneytisins sem lúta að dómstólum, löggæslu og fangelsismálum hefðu átt að fá 6% hagræðingarkröfu í stað 10%. Byggir meiri hlutinn það á þeirri skoðun sinni að þeir teljist til grunnþjónustu samfélagsins og séu enn fremur grundvallarstoðir réttarríkisins. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu er einnig ljóst að það mun reyna mikið á þessa málaflokka á næstu missirum.
    Fyrir nefndinni kom fram að ráðuneytið teldi að ekki væri unnt að mæta hagræðingarkröfu næstu ára nema með kerfisbreytingum á stofnunum og endurskoðun á verkefnum þeirra. Þessi afstaða fellur vel að ábendingum nefndarinnar í fyrri álitum um mikilvægi þess að litið sé til þess hvernig unnt er að hagræða í rekstri stofnana og embætta með sameiningu, samstarfi og samhæfingu verkefna. Í þessu sambandi vill meiri hlutinn vekja sérstaka athygli á Neytendastofu og embætti talsmanns neytenda sem fluttust yfir til ráðuneytisins með breytingum sem gerðar voru á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins. Meiri hlutinn tekur einnig fram að það er í anda þeirrar sóknaráætlunar sem nú er í mótun á vegum ríkisstjórnarinnar og kemur fram í frumvarpinu og felst í að auka skilvirkni, einfalda stjórnsýslu og þjónustu til framtíðar en samkvæmt fyrirliggjandi hugmyndum verður landinu skipt upp í sex til sjö svæði. Meðal þeirra verkefna sem falla að áætluninni og unnið er að í ráðuneytinu er endurskipulagning allra fámennustu stofnananna, endurskipulagning lögregluembætta, endurskoðun á skipan sýslumannsembætta og sameining héraðsdómstóla í einn. Fram kom að endurskoðun á skipan sýslumannsembætta hefði verið frestað þar sem ekki hefði verið unnt að ljúka henni fyrir áramót. Ljóst er að breytingar sem þessar þarfnast nokkurs aðdraganda og koma áhrif þeirra því ekki fram fyrr en eftir nokkra mánuði eða jafnvel ár. Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að fram fari mat á samfélagsáhrifum áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar og þess gætt að þjónusta við íbúa á landsbyggðinni verði ekki skert. Meiri hlutinn leggur engu síður áherslu á nauðsyn þess að vinna markvisst að þessum verkefnum og telur að með því að fækka embættum verði unnt að efla þau og þar með þjónustu við borgarana.
    Nefndin ræddi sérstaklega um málefni dómstólanna en fyrir nefndinni kom fram að afstaða ráðuneytisins væri sú að mörkuð hefði verið skýr stefna af hálfu löggjafans með stofnun embættis sérstaks saksóknara til þess að taka mál tengd bankahruninu föstum tökum og því sé skýr vilji til þess að dómstólar geti einnig mætt þeim aukna málafjölda sem væntanlega mun fylgja í kjölfarið og hefur dómsmála- og mannréttindaráðherra því lagt fyrir ríkisstjórn erindi um aukafjárveitingu til málaflokksins. Meiri hlutinn fellst á þetta sjónarmið og styður að veitt verði fjárveiting til þessa.
    Þá ræddi nefndin einnig um fjárveitingar til löggæslustofnana og kynnti sér skýrslu ríkislögreglustjóra, sem unnin var að beiðni ráðherra, um skilgreiningu á grunnþjónustu lögreglunnar. Í skýrslunni er gerð grein fyrir þeim hlutverkum sem lögreglan gegnir og lögbundnum verkefnum hennar forgangsraðað. Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um grunnþjónustuna sem löggæslan er og telur að skýrslan geti orðið góður grunnur að athugun á því hvernig unnt er að nýta sem best þá fjármuni sem veittir eru til löggæslu.
    Nefndin hefur í álitum sínum sl. ár lagt sérstaka áherslu á fjárveitingar til fangelsismála. Nefndin kynnti sér stöðu þessara mála og heimsótti fangelsið á Litla-Hrauni og Hegningarhúsið Skólavörðustíg og átti fundi með forstöðumönnum þeirra, fulltrúum Fangelsismálastofnunar og fulltrúum félags fanga. Meiri hlutinn telur að mikið og gott starf hafi verið unnið síðustu ár í fangelsunum við mjög þröngan kost. Nefnir meiri hlutinn þar sérstaklega meðferðargang á Litla Hrauni sem er nýlegt úrræði þar sem fram fer mikil endurhæfing fanga sem felst m.a. í því að þeir sjá sjálfir um eldamennsku, þrif og þvotta. Úrræðið er eftirsótt meðal fanga og er biðlisti eftir því að komast að. Það hefur reynst sérstaklega vel fyrir einstaklinga með langan brotaferil og hefur fækkað endurkomum meðal þeirra.
    Þá kom fram að fangelsi landsins eru nánast fullnýtt og kerfið býr því nú þegar við alvarlegan vanda. Sú staða er varhugaverð í ljósi þess að refsingar hafa verið að þyngjast, málum hefur fjölgað og útlit er fyrir að þeim fjölgi enn frekar á næstunni. Að óbreyttu verður því ekki unnt að fullnusta dóma. Fyrir liggur heimild ríkisstjórnar til ráðuneytisins að leigja hentugt húsnæði tímabundið til að bregðast við þessari þörf. Meiri hlutinn leggur mikla áherslu á að gengið verði frá samningum hið fyrsta.
    Að lokum telur nefndin rétt að taka fram mikilvægi þess að standa vörð um grunnþjónustuna í þeim niðurskurði sem fyrirséður er á næstu árum.
    Ásmundur Einar Daðason skrifar undir álitið með fyrirvara vegna setu í fjárlaganefnd.
    Valgerður Bjarnadóttir skrifar undir álitið með fyrirvara.

Alþingi, 13. nóv. 2009.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, form.,
Atli Gíslason,
Valgerður Bjarnadóttir, með fyrirvara,
Ásmundur Einar Daðason, með fyrirvara,
Róbert Marshall,
Þráinn Bertelsson.




Fylgiskjal VI.


Álit



um frv. til fjárlaga 2010 (00 Æðsta stjórn ríkisins, 01 Forsætisráðuneyti og 06 Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti).

Frá minni hluta allsherjarnefndar.



    Minni hluti allsherjarnefndar tekur undir flest þau meginsjónarmið sem fram koma í áliti meiri hluta nefndarinnar um fjárlagafrumvarpið. Minni hlutinn telur þó rétt að fjalla um nokkur atriði sérstaklega.
    Minni hlutinn er fullkomlega ósammála þeirri forgangsröð sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar og kemur m.a. fram í því að grundvallarstofnanir á sviði réttarvörslu í landinu er látnar sæta hinni almennu hagræðingarkröfu sem gerð er til stjórnsýslu- og eftirlitsstofnana. Þetta leiðir m.a. til þess að verulegur niðurskurður kemur fram varðandi fjárveitingar til lögreglu og dómstóla á sama tíma og ljóst er að þessar stofnanir munu þurfa að takast á við stóraukið álag í störfum sínum. Stjórnvöld og Alþingi hafa þegar viðurkennt þessa staðreynd með umtalsverðum aukafjárveitingum til ákæruvaldsins – með stofnun embættis sérstaks saksóknara og auknum fjárveitingum til þess í ljósi umfangs þeirra verkefna sem það hefur með höndum. Á sama tíma verður hins vegar að horfast í augu við að sömu rök eru fyrir auknum fjárveitingum til annarra embætta sem fást við mikilvæg verkefni á þessu sviði.
    Minni hlutinn minnir á að þegar fyrri ríkisstjórn mótaði stefnu um hagræðingu og sparnað í ríkisrekstrinum fyrir árið sem nú er að líða var nokkurt tillit tekið til þessara sjónarmiða og mun minni hagræðingarkrafa gerð til grundvallarstofnana á málefnasviði dómsmálaráðuneytis en almennt gilti um stofnanir ríkisins. Var litið til þess að um grunnþjónustu væri að ræða með sama hætti og grunnþjónustu á sviði mennta-, félags- og heilbrigðismála. Eðlilegt væri að núverandi ríkisstjórn og stjórnarmeirihluti á þingi hefðu sömu sjónarmið uppi við fjárlagagerð fyrir næsta ár.
    Hvað dómstóla varðar er ljóst að þegar hefur orðið mikil fjölgun á dómsmálum: skuldamálum, munnlega fluttum einkamálum og sakamálum. Allt bendir til þess að þessum málum muni fjölga verulega á næstu missirum. Ekki er nóg með að mörg þeirra mála sem til rannsóknar eru hjá sérstökum saksóknara munu rata til dómstóla heldur er fyrirsjáanlegt að einkamálum muni líka fjölga umtalsvert vegna uppgjörs bankanna og margvíslegra annarra mála sem tengjast gjaldþrotum og fjárhagslegri endurskipulagningu í atvinnulífinu. Þá hefur brotum á öðrum sviðum einnig fjölgað með þeim afleiðingum að álagið á dómskerfið mun aukast.
    Sömu sjónarmið eiga við um aðrar stofnanir ákæruvaldsins, þar á meðal embætti ríkissaksóknara og saksóknara efnahagsbrota. Þrátt fyrir að mál sem tengjast bankahruninu séu tekin sérstaklega fyrir af embætti sérstaks saksóknara bendir ekkert til annars en að málafjöldi á borðum ríkissaksóknara og saksóknara efnahagsbrota, svo dæmi séu nefnd, muni líka fara vaxandi.
    Hvað lögregluna varðar á hið sama við. Þjóðfélagsástandið sem skapast hefur vegna efnahagskreppunnar og bankahrunsins gerir að verkum að mun meira reynir á lögregluna á mörgum sviðum. Á tímum sem þessum er einmitt sérstaklega mikilvægt að lögreglan hafi möguleika á að sinna hlutverki sínu við að koma í veg fyrir brot, bregðast við þeim og rannsaka hratt og örugglega. Það á jafnt við um hlutverk lögreglunnar við að gæta almannareglu og öryggis ríkisins og að takast á við önnur brot, hvort sem þau beinast að lífi og heilsu fólks eða fjárhagslegum hagsmunum. Óróleiki í þjóðfélaginu og óöryggi borgaranna eykst að sjálfsögðu ef lögreglan hefur ekki tök á að sinna þessu hlutverki sínu vegna manneklu og fjárskorts. Hér er því um einstaklega viðkvæmt svið að ræða og mikilvægt að taka ríkt tillit til þess við fjárlagagerðina.
    Minni hluti allsherjarnefndar vill á þessu stigi ekki taka afstöðu til skipulagsbreytinga sem dómsmálaráðherra hefur boðað, varðandi skipan dómstóla og lögreglumála. Minni hlutinn telur að breytingar af því tagi þarfnist vandaðs undirbúnings og ákvarðanir sem teknar verða í þeim efni hljóti að taka mið af fjölmörgum öðrum sjónarmiðum en fjárhagslegri hagræðingu. Að sjálfsögðu er mikilvægt að vel sé farið með fé á þessum sviðum opinberrar þjónustu eins og annars staðar en þótt nú kreppi að í ríkisrekstrinum um sinn mega fagleg sjónarmið ekki víkja þegar skipan þessara mála er ákveðin til langrar framtíðar. Varðandi fjárlagagerð fyrir næsta ár verður líka að hafa í huga að ólíklegt er að skipulagsbreytingar muni leiða til mikils sparnaðar enda sýnir reynslan að skipulagsbreytingum á stofnunum fylgir jafnan kostnaður meðan þær eru að komast til framkvæmda. Telur minni hlutinn því óþarft og óráðlegt að tengja skipulagsbreytingar á þessum sviðum við fjárlagagerð fyrir næsta ár, ekki síst í ljósi þess að aðeins eru örfáar vikur til áramóta og skammt eftir af starfstíma þingsins.

Alþingi, 13. nóv. 2009.



Birgir Ármannsson,


Vigdís Hauksdóttir.





Fylgiskjal VII.



Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (02 Mennta- og menningarmálaráðuneyti).

Frá meiri hluta menntamálanefndar.



    Menntamálanefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar fjallað um þann kafla fjárlagafrumvarpsins sem er á málefnasviði hennar og gert tillögu að skiptingu á einstökum safnliðum, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, og bréf fjárlaganefndar frá 19. október 2009. Nefndin fékk á sinn fund Gísla Þór Magnússon, Auði Björgu Árnadóttur, Jenný Báru Jensdóttur og Hellen M. Gunnarsdóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Guðbjörgu Aðalbergsdóttur frá Félagi íslenskra framhaldsskóla, Kristínu Ingólfsdóttur frá samstarfsnefnd háskólastigsins, Líneyju Rut Halldórsdóttur og Ólaf Rafnsson frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og Ágúst Guðmundsson, Kolbrúnu Halldórsdóttur, Sigrúnu Birgisdóttur, Hjálmtý Heiðdal, Þuríði Sigurðardóttur, Pétur Gunnarsson, Kristínu Mjöll Jakobsdóttur og Björn Th. Árnason frá Bandalagi íslenskra listamanna.
    Heildarútgjöld mennta- og menningarmálaráðuneytis árið 2010 eru áætluð um 64.707 m.kr. á rekstrargrunni. Frá dragast sértekjur að fjárhæð 5.876 m.kr. en þær nema 9,1% af heildargjöldum ráðuneytisins. Gjöld umfram tekjur eru 58.831 m.kr. og af þeirri fjárhæð eru 57.379 m.kr. fjármagnaðar með beinu framlagi úr ríkissjóði og 1.452 m.kr. innheimtar af ríkistekjum.
    Nefndin hefur tekið til umfjöllunar og meðferðar þann hluta fjárlagafrumvarpsins sem snýr að nefndinni. Heildarfjárveiting til háskóla og rannsókna lækka um 1.343,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar launa- og verðlagsbreytingar sem nema 497,5 m.kr. Samkvæmt frumvarpinu eru fjárframlög til háskóla og háskólastofnana lækkuð um 8,5%, aðrir liðir um 10% en ekkert er skorið niður til framlaga í rannsóknarsjóði. Framlag til Háskóla Íslands lækkar um 800 m.kr. en á móti kemur 360 m.kr. framlag vegna nemendafjölgunar. Meiri hlutinn vill benda á að jafnframt hefur verið frestað samningi milli mennta- og menningarmálaráðuneytisins og háskólans um kennslu og rannsóknir þar sem kveðið var á um að rannsóknarframlög til skólans mundu hækka um 640 m.kr. árlega á árunum 2007–2011.
    Heildarfjárveiting til framhaldsskóla lækkar um 709,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar almennar verðlagsbreytingar og lækka framlögin að jafnaði um 5,5% frá fjárlögum 2009. Samkvæmt frumvarpinu verður dregið úr útgjöldum málaflokksins um 1.126,1 m.kr. á verðlagi gildandi fjárlaga en á móti koma ýmsar útgjaldaskuldbindingar, til að mynda 128,5 m.kr. vegna nemendafjölgunar. Þá hefur nefndin fengið þær upplýsingar að sá árgangur sem nú lýkur grunnskóla sé álíka stór og sá á undan en þar var um óvenju stóran hóp að ræða. Meiri hlutinn telur að tryggja verði að fjármagn fylgi nemendum háskóla og framhaldsskóla og skólunum gert kleift að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Einnig verði tryggt að fjarnám, dreifnám og fljótandi skil skólastiga þróist áfram á jákvæðan hátt.
    Þegar draga þarf úr útgjöldum er augljóst að forgangsraða þarf verkefnum. Ekki verður um of áréttað mikilvægi þess að standa vörð um menntakerfið á öllum skólastigum í núverandi efnahagsástandi og þá er ljóst að eftirspurn í háskóla og framhaldsskóla eykst með auknu atvinnuleysi. Til að koma í veg fyrir að atvinnuleysi verði stærra félagslegt vandamál er nauðsynlegt að auðvelda fólki að fara aftur í nám. Þegar hefur verið gripið til aðgerða í þá veru með því að breyta reglum um tekjuviðmiðun þeirra sem fara í nám aftur eftir hlé og með því hækka grunnframfærslu námslána með tilheyrandi millifærslu frá atvinnuleysistryggingum til Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Í frumvarpi til fjárlaga er ljóst að menntun er raðað framar menningu í forgangsröðun mennta- og menningarmálaráðuneytis og telur meiri hlutinn slíkt eðlilegt við þær aðstæður sem nú eru. Ekki má þó draga úr samfélagslegu og félagslegu mikilvægi menningar og áréttar meiri hlutinn að þær aðhaldsaðgerðir sem farið er í verði tímabundnar þannig að aukning verði til fjárlagaliða er varða menningu og listir um leið og svigrúm er til í ríkisfjármálum.
    Nefndin hefur tekið almennan hluta fjárlaga til ítarlegrar umfjöllunar og leggur meiri hlutinn ekki til breytingar á einstökum liðum. Hann telur þó rétt að árétta að tryggt verði nægt fjármagn til lögbundinna verkefna, svo sem til safna. Þá er í frumvarpinu í lið 02-978-1.01 Listasjóðir vísað til laga sem felld voru úr gildi samhliða nýjum lögum um listamannalaun, nr. 57/2009. Í ár falla niður ýmis tímabundin framlög til einstakra verkefna vegna mótvægisaðgerða. Beinir meiri hlutinn því til fjárlaganefndar að skoða þessa liði sérstaklega þar sem oft er um mikilvæg verkefni að ræða sem styrkja og hvetja fólk til að leita frekari menntunar og fjárframlag nauðsynlegt til stuðnings áframhaldandi starfsemi. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir um 250 m.kr. lækkun á framlagi til jöfnunar námskostnaðar en það er um 32,5% frá fjárlögum 2009. Telur meiri hlutinn eðlilegt að ekki verði beitt flötum niðurskurði hjá jöfnunarsjóði heldur verði fremur farið í endurskoðun úthlutunarreglna. Framlag til Kvikmyndasjóðs var tekið til sérstakrar umfjöllunar í nefndinni enda mjög skorið niður í framlögum til sjóðsins. Leggur meiri hlutinn til að áhrif þessara aðgerða verði skoðuð sérstaklega.
    Nefndinni bárust 105 umsóknir um fjárveitingar af safnliðum og komu 40 umsækjendur á fund nefndarinnar. Meiri hlutinn áréttar það sem komið hefur fram í álitum menntamálanefndar um fjárlög síðustu ára að nauðsynlegt er að fyrirkomulag við úthlutun fjárveitinga af safnliðum verði tekið til gagngerrar endurskoðunar. Áður hefur meiri hlutinn lagt áherslu á að farið yrði í slíka endurskoðun og ítrekar þau sjónarmið enn á ný. Meiri hlutinn bendir á að til staðar eru ýmsir sjóðir sem komið hefur verið á í þeim tilgangi að úthluta fjármunum til einstakra verkefna auk þess sem gerðir hafa verið menningarsamningar við sveitarfélög á landsbyggðinni. Meiri hlutinn telur að veita eigi fjármuni sem verið hafa á safnliðum til þessara sjóða og til menningarsamninga. Þannig má tryggja að úthlutun fjármuna verði byggð á faglegri forsendum, taki tillit til svæðisbundinna þarfa og auðvelda auk þess eftirlit með nýtingu fjármuna.
    Nefndin leggur til að 48 umsækjendur fái styrk. Mikill niðurskurður er á framlögum til safnliða og er ljóst að ekki er hægt að verða við nema litlum hluta beiðna. Má þar til dæmis nefna safnlið 02-982-1.90, Listir, framlög, þar sem einungis 5 m.kr. eru til ráðstöfunar en umsóknir nema 141,6 m.kr. Vegna þessarar stöðu leggur meiri hlutinn fyrst og fremst áherslu á að styrkja verkefni sem stuðla að menntun og menningariðkun barna og unglinga eða að framlögin skapi atvinnutækifæri og stuðli að nýsköpun eða verðmætasköpun. Einnig leggur meiri hlutinn ekki til veitingu styrkja til stofnkostnaðar en mælir með að tekið verði tillit til þeirra umsókna við úthlutun á lið 02-919-6.90. Þá leggur meiri hlutinn áherslu á svigrúm sé til að veita styrk til sögulega mikilvægra safna.
    Hvað varðar lið 02-999-1.90, Ýmis framlög telur meiri hlutinn rétt að athugaðir verði möguleikar þess að setja Þórbergssetur inn á fast viðfang. Þá telur meiri hlutinn að skoða þurfi að sambærileg setur njóti sambærilegrar stöðu innan fjárlaga. Enn fremur telur meiri hlutinn nokkur rök hníga að því að Handverk og hönnun verði sett inn á fast viðfang. Um er að ræða mikilvæga starfsemi sem eflir handverk og hönnun á landsvísu og styður þá sem eru að fóta sig á þessu sviði og telur meiri hlutinn slíkt mikilvægt á tímum sem þessum. Hvað varðar safnlið 02-919-1.90 er álit meiri hlutans að Leikminjasafn Íslands og Þjóðfræðistofa eigi heima á föstu viðfangi.
    Meiri hlutinn leggur til að af lið 02-983-1.11 verði 3 m.kr. færðar á lið 02-999-1.90 og af sama lið 10,3 m.kr. á lið 02-919-1.90. Einnig er lagt til að 0,9 m.kr. verði færðar af lið 02- 988-1.90 á lið 02-919-1.90.
    Tillögur meiri hlutans um skiptingu safnliða koma fram í sérstöku fylgiskjali.
    Oddný Harðardóttir og Ásmundur Einar Daðason skrifa undir álitið með fyrirvara vegna setu í fjárlaganefnd.

Alþingi, 12. nóv. 2009.

Oddný Harðardóttir, form., með fyrirvara,
Ásmundur Einar Daðason, með fyrirvara,
Jónína Rós Guðmundsdóttir,
Lilja Mósesdóttir,
Anna Pála Sverrisdóttir.



Fylgiskjal VIII.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (02 Mennta- og menningarmálaráðuneyti).

Frá 1. minni hluta menntamálanefndar.



    Fyrsti minni hluti getur ekki fellt sig við þau vinnubrögð sem viðhöfð eru við gerð fjárlaga og þá einkum úthlutun menntamálanefndar sem hefur í gegnum árin ekki byggst á faglegum forsendum, verið tilviljunarkennd og jafnvel stjórnast af kjördæmapoti einstakra þingmanna.
    Minni hlutinn leggur til að fyrirkomulag við úthlutun fjármuna af safnliðum sem heyra undir menntamálaráðuneytið verði endurskoðað og gerðar á því róttækar breytingar hið fyrsta svo að fagleg sjónarmið ráði för. Lagt er til að fjármunir á safnliðum 02-919-1.90, 02-919- 1.98, 02-919-6.90, 02-919-6.45, 02-982-1.90, 02-983-1.11 og 02-999-1.90 verði færðir á fjárlagaliði sjóða sem hafa það lögbundna hlutverk að styrkja lista- og menningarstarfsemi. Sjóðunum ber að meta umsóknir á faglegum forsendum og meta allar umsóknir á sama kvarða. Auk þess hafa sjóðirnir ákveðið eftirlitshlutverk og eiga að ganga eftir því að fjármununum sé varið í þau verkefni sem þeim er úthlutað til en eftirlit af hálfu menntamálanefndar hefur ekki verið fyrir hendi. Bókmenntasjóður styrkir til að mynda ekki útgáfu bóka sem koma ekki út.
    Sjóðirnir sem um ræðir eru bókmenntasjóður, safnasjóður, húsafriðunarsjóður, tónlistarsjóður, barnamenningarsjóður, fornleifasjóður og Kvikmyndasjóður en einnig má nefna starfsemi atvinnuleikhópa. Eins hafa verið gerðir menningarsamningar við sveitarfélög á landsbyggðinni og mætti nota þessa fjármuni til að efla þá.

Alþingi, 12. nóv. 2009.



Margrét Tryggvadóttir.





Fylgiskjal IX.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (03 Utanríkisráðuneyti).

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar.



    Utanríkismálanefnd hefur fjallað um þann kafla fjárlagafrumvarpsins sem er á málefnasviði hennar, sbr. 2. mgr. 25. gr. þingskapa og bréf fjárlaganefndar frá 19. október sl. Nefndin fékk á sinn fund Einar Gunnarsson, Pétur Ásgeirsson og Gunnlaugu Guðmundsdóttur frá utanríkisráðuneyti.
    Frumvarpið gerir ráð fyrir að heildarrekstrargjöld utanríkisráðuneytis árið 2010 nemi tæpum 11.633 m.kr. á rekstrargrunni sem samsvarar um 7% lækkun frá fjárlögum 2009. Heildarhagræðing innan ráðuneytisins nemur um 1392 m.kr. og þar af er 71% af liðum sem snúa að þróunarmálum. Framlög til Þróunarsamvinnustofnunar Íslands lækka um rúm 16% frá fjárlögum 2009 samkvæmt frumvarpinu og framlög til þróunarmála og alþjóðlegrar hjálparstarfsemi um rúm 24% frá fyrra ári. Meiri hluti nefndarinnar leggur engu síður áherslu á að til frambúðar verði áfram unnið að því markmiði stjórnvalda að framlög til þróunarmála verði 0,35% af vergri þjóðarframleiðslu og telur að freista eigi þess að draga úr lækkun framlaga til þessa þáttar eins og svigrúm kann að leyfa.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 250 m.kr. fjárveitingu í tengslum við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Gert er ráð fyrir að framlagið verði tímabundið í tvö ár og að mestu notað í óhjákvæmilegan ferðakostnað og kaup á utanaðkomandi sérfræðiþjónustu. Meiri hlutinn beinir þeim tilmælum til utanríkisráðuneytis að gæta ýtrustu hagkvæmni til að draga úr líkum á því að til viðbótarfjárveitinga þurfi að koma.
    Nefndinni voru kynntar hugmyndir á vinnslustigi um flutning verkefna Varnarmálastofnunar til Landhelgisgæslunnar og Flugstoða. Meiri hlutinn tekur undir þau stefnumótandi áform sem í þeim felast og hugmyndina um að Varnarmálastofnun verði lögð niður í núverandi mynd með þeim sparnaði og hagræðingu sem því getur fylgt.
    Loks leggur meiri hlutinn áherslu á að kannað verði til þrautar hvort ásættanlegur hagnaður geti náðst, með langtímahagsmuni að leiðarljósi, við sölu fasteigna í eigu ríkisins sem notaðar eru fyrir sendiskrifstofur Íslands erlendis. Jafnframt vekur meiri hlutinn máls á því hvort ástæða sé til að fækka sendiráðum Íslands erlendis umfram það sem orðið er og efla frekar starfsemi í þeim löndum sem eftir verða eða auka samstarf við önnur Norðurlandaríki um rekstur sendiskrifstofa þar sem slíkt getur reynst hagkvæmt.

Alþingi, 11. nóv. 2009.

Árni Þór Sigurðsson, form.,
Valgerður Bjarnadóttir,
Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Birgitta Jónsdóttir,
Ögmundur Jónasson.




Fylgiskjal X.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (04 Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti).

Frá meiri hluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar.



    Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar fjallað um þá þætti fjárlagafrumvarpsins sem eru á málefnasviði hennar, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, og bréf fjárlaganefndar frá 19. október 2009.
    Nefndin fékk á sinn fund Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóra og Arndísi Steinþórsdóttur frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti auk þess sem nokkur fjöldi gesta kom til fundar við nefndina vegna umsókna um fjárveitingu af safnliðum.
    Fram kom á fundi nefndarinnar að heildarútgjöld sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis árið 2010 eru áætluð 20.006 m.kr. á rekstrargrunni. Frá dragast sértekjur að fjárhæð 1.197 m.kr. en þær nema 6% af heildargjöldum ráðuneytisins. Gjöld umfram tekjur eru 18.809 m.kr. og af þeirri fjárhæð eru 16.255 m.kr. fjármagnaðar með beinu framlagi úr ríkissjóði og 2.554 m.kr. innheimtar af ríkistekjum. Rekstrargjöld ráðuneytisins að frádregnum sértekjum eru áætluð 4.381,3 m.kr. og lækka því um 270,2 m.kr. milli ára. Rekstrarfjárveitingar flestra stofnana og verkefna sem heyra undir ráðuneytið eru lækkaðar vegna áforma um hagræðingu í rekstrarkostnaði ríkissjóðs. Við þessa hagræðingu hefur ýmsu verið forgangsraðað þannig að ekki er um flatan niðurskurð að ræða. Neyslu- og rekstrartilfærslur hækka um 1.555,5 m.kr. og verða 14.267,4 m.kr. Loks er gert ráð fyrir að skuldbindandi samningar sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur gert nemi um 10.610,0 m.kr. á yfirstandandi ári, samtals munu samningarnir því nema um 53,6% af heildarútgjöldum ráðuneytisins á næsta ári. Nefndin telur æskilegt að halda framlagi til verkefnisins Bændur græða landið, sem er á fjárlagalið nr. 04-483 Landgræðsla og skógrækt í þágu landbúnaðar, óbreyttu og telur að helst ætti að auka það frá fjárlögum fyrir árið 2009 og spara á móti á öðrum liðum, enda er verkefnið einkar mikilvægt. Gert er ráð fyrir um 10% skerðingu auk þess sem verkefnið var skert umtalsvert í fyrra. Einnig er vakin athygli fjárlaganefndar á mikilvægi þess að Vör, sjávarrannsóknarsetur við Breiðafjörð, haldi sínum hlut samkvæmt frumvarpinu á fjárlagalið 04-190-1.98.
    Nefndin tók fyrir skiptingu safnliðar 04-190-1.90, Ýmis verkefni, samkvæmt beiðni fjárlaganefndar. Nefndinni bárust fjölmargar umsóknir og tók nefndin á móti fjölda gesta í tengslum við safnliðina. Tillögur nefndarinnar um skiptingu safnliðar 04-190-1.90 eru í meðfylgjandi fylgiskjali og leggur nefndin til að safnlið 04-190-1.90 verði skipt samkvæmt sundurliðuninni sem þar er tilgreind. Nefndin ræddi mikilvægi þess að fé sé varið í verkefni sem ekki eru fjárfrek en eru líkleg til atvinnusköpunar og hafði nefndin þau sjónarmið að leiðarljósi við úthlutun. Í samræmi við það ákvað nefndin að styrkja verkefni á borð við Beint frá býli enn frekar þar sem það er mikilvægur vaxtarbroddur í íslenskum landbúnaði og getur þetta þýtt mikinn virðisauka og er atvinnuskapandi fyrir búin án þess að til mikilla fjárútláta þurfi að koma. Nefndin leggur til að verkefnið Beint frá býli fái 6 m.kr. heildarfjárveitingu, þ.e. 3 m.kr. eru veittar samkvæmt umsókn til að kosta verkefni félagsins samkvæmt kostnaðaráætlun en 3 m.kr. skal varið í nýtt verkefni sem snýr að því að athuga möguleika á að rýmka heimildir til heimaslátrunnar og kanna gjaldtöku fyrir slátrun hjá sláturleyfishöfum og reglusetningu ESB um heimaslátrun. Nefndin telur mikilvægt að framlög í verkefni af þessu tagi séu aukin því að þau skila sér margfalt til baka ef rétt er að staðið. Verkefnið hefur þegar sannað ágæti sitt.
    Vakin er athygli fjárlaganefndar á styrkbeiðni frá Geitfjársetri sem vísað hefur verið á stofnfjárlið og leggur nefndin áherslu á mikilvægi þess að verkefni þessu verði veitt brautargengi. Rekstrarstaðan er slæm og fjárveitingin nauðsynleg til að hægt sé að halda starfseminni áfram. Þarna er á ferðinni mikið þjóðþrifamál sem er varðveisla og efling íslenska geitastofnsins en stofninn er talinn vera sá hreinasti en jafnframt minnsti sem vitað er um. Auk þess leggur nefndin til að 2 m.kr verði veitt í Geitfjársetur af fjármunum þeim sem sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd hefur til ráðstöfunar á safnlið 04-190-1.90. Nefndin vill einnig vekja athygli fjárlaganefndar á verkefni sem snýr að endurgerð Skaftholtsrétta. Réttir þessar eru ævafornar, hafa verið endurbyggðar og hafa mikið menningarlegt gildi og leggur nefndin til að 1 m.kr. af ráðstöfunarfé nefndarinnar verði varið í verkefnið vegna endurbyggingarinnar. Þeirri fjárhæð sem eftir stendur af safnliðnum, 3 m.kr., leggur nefndin til að verði úthlutað jafnt til eftirfarandi verkefna, Fiska- og náttúrugripasafni Vestmannaeyja, Selaseturs Íslands og Síldarminjasafnsins á Siglufirði, en það gerir 1 m.kr á hvert. Verkefni þessi eru öll á fjárlagalið 02-919-1.90 hjá menntamálanefnd en koma inn á svið sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og telur nefndin því rétt að leggja þeim lið.
    Það er ljóst að á komandi missirum verður enn frekari niðurskurður sem verður mörgum greinum erfiður. Nefndin ítrekar því mikilvægi þess að við niðurskurðinn sé lögð áhersla á að halda inni verkefnum sem líkleg eru til að skapa atvinnu, spara gjaldeyri og auka gjaldeyristekjur en að saman skapi takmarka fjölda nýrra verkefna sem ráðist verður í.
    Ögmundur Jónasson og Björn Valur Gíslason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi 12. nóvember 2009.

Atli Gíslason,
Ólína Þorvarðardóttir,
Róbert Marshall,
Helgi Hjörvar, með fyrirvara.




Fylgiskjal XI.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (04 Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti).

Frá 1. minni hluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar.



    Fjárlög eru nú undirbúin við erfiðar aðstæður. Tekjur ríkisins hafa minnkað í takt við minnkandi umsvif þjóðarbúsins og útgjöld hafa á sama tíma aukist. Mikilvægt er við þessar aðstæður að gæta aðhalds við rekstur ríkisins og hvetur 1. minni hluti til þess. Það er yfirlýst af hálfu ríkisstjórnarinnar að ekki eigi að fara leið flats niðurskurðar og er það markmið sannarlega eðlilegt. Ráðuneytum og stofnunum þeirra eru hins vegar settir fjárlagarammar þar sem finna má mismunandi aðhaldsmarkmið eftir málaflokkum. Við þessar aðstæður er niðurskurður vandasamari og leggur meiri ábyrgð á herðar Alþingi. Nauðsynlegt er að meta einstök verkefni og þýðingu þeirra og setja þau inn í þá stefnumótun sem fjárlögum er ætlað að varða.
    Hér verða ekki gerðar athugasemdir við þann almenna sparnaðarramma sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu er settur, enda er hann í samræmi við þau áform sem eru uppi um útgjöld flestra annarra ráðuneyta. Á hinn bóginn er mikilvægt að skoða einstaka útgjaldaþætti lið fyrir lið. Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd hefur ekki haft aðstöðu til þess og umfjöllun hennar byggist því á sjálfstæðri skoðun á frumvarpinu og á fundi sem nefndin átti með fulltrúum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
    Áður en lengra er haldið er nauðsynlegt að undirstrika sérstöðu þessa málaflokks í fjárlögunum. Þar er í fyrsta lagi að nefna útgjöld til þess að standa straum af greiðsluskuldbindingum vegna mjólkur-, sauðfjár- og grænmetisframleiðslu. Hér er byggt á samningum bænda og ríkisvaldsins og er vakin athygli á að greiðslur vegna þeirra hafa verið lækkaðar frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir. Er þar í raun fylgt sömu stefnu fyrir næsta ár og mörkuð var í fjárlögum á yfirstandandi ári. Kostnaður vegna þessara þriggja samninga er áætlaður á næsta ári um 10,2 milljarðar kr.
    Annað atriði sem ástæða er til þess að nefna er að drjúgur hluti útgjalda ráðuneytisins er vegna rannsókna og þróunarstarfsemi. Má þar nefna fjárveitingar til Hafrannsóknastofnunarinnar, MATÍS, Veiðimálastofnunar, sjóðs um aukið verðmæti sjávarfangs, rannsókna háskóla í þágu landbúnaðarins og rannsókna í skógrækt í þágu landbúnaðar. Alls eru áætlaðir um 2,4 milljarðar kr. til þessara viðfangsefna.
    Þetta er hér undirstrikað til þess að vekja athygli á þeim skorðum sem hagræðingu eru hér settar. Annars vegar er um að ræða hlutfallslega stóra fjárlagaliði sem eru samningsbundnir og hins vegar fjárveitingar til málaflokka sem áhersla hefur verið lögð á að verja sérstaklega. Í þessu sambandi þarf að benda á að nettóútgjöld ríkissjóðs vegna sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins nema tæpum 16,3 milljörðum kr.
    Við niðurskurð ríkisútgjalda vill 1. minni hluti beina sjónum að Hafrannsóknastofnuninni, sérstaklega í ljósi þess að bent hefur verið á mikilvægi þess að fiskveiðiráðgjöf hennar sé sem áreiðanlegust og best. Í tengslum við niðurskurð þorskaflaheimilda var tekin ákvörðun um að auka fjárveitingar til stofnunarinnar, til þess að bæta grundvöll þeirra rannsókna sem stofnmat hennar byggist á. Hér er átt við svokallað togararall. Var veitt til þess 50 millj. kr. árlegt framlag. Nú hefur verið ákveðið að ekki verði framhald á þessari fjárveitingu, jafnframt því sem niður fellur sérstakur fjárlagaliður vegna rannsókna á Drekasvæðinu. Til viðbótar tekur stofnunin á sig samræmda hagræðingarkröfu. Ljóst má vera að rekstrarhagkvæmni stofnunarinnar minnkar við þetta og engum blöðum er um það að fletta að umfang rekstrarins verður mun minna á næsta ári. Mikilvægt er því að við gerð rekstraráætlana sé áfram gætt hagkvæmni og áhersla lögð á að draga sem minnst úr þeim rannsóknum sem eru undirstaða stofnmatsins. Á fundi nefndarinnar kom fram að áform eru um að draga mjög úr starfsemi samráðsnefndar Hafrannsóknastofnunarinnar en í henni eiga sæti sérfræðingar stofnunarinnar og fulltrúar sjómanna og útgerðarmanna auk sérfræðinga utan stofnunarinnar, þar á meðal erlendir sérfræðingar. Þetta telur 1. minni hluti ranga áherslu og minnir á yfirlýsingar sem fram hafa komið víða um þýðingu þess að efla samstarf hagmunaaðila og sjómanna jafnframt því að kalla eftir viðhorfum vísindamanna utan stofnunarinnar.
    Vakin er athygli á að samkvæmt fjárlagafrumvarpi er áætlað að greiðslur til Lífeyrissjóðs bænda (LSB) verði lækkaðar um 45% á milli ára, eða úr 325 millj. kr. í 178 millj. kr. Ekkert formlegt samkomulag hefur verðið í gildi undanfarin ár á milli Bændasamtaka Íslands og ríkissjóðs um framlög til sjóðsins. Framlög til hans hafa verið skilgreind á fjárlögum undanfarin ár innan greiðslna til búvörusamninga sauðfjár og mjólkurframleiðslu. Þrátt fyrir að ekki hafi fengist formlegt samkomulag um framlög til sjóðsins hafa bændur haft réttmætar væntingar um að staðið yrði við verðgildi framlaga til LSB, enda hafa stjórnvöld ekki á undanförnum árum gert athugasemdir við framkvæmdina og haft sömu sjónarmið. Stjórnvöld hafa rækt hlutverk sitt samkvæmt sérlögum um LSB, skipað þar í stjórn og tekið þátt í rekstri sjóðsins. 1. minni hluti undirstrikar að eðlilegt er að um þessi mál sé gert samkomulag á milli Bændasamtakanna og ríkisvaldsins. Ljóst virðist að lægra framlag til lífeyrissjóðsins muni hafa áhrif á framtíðarmöguleika sjóðsins til útgreiðslu á lífeyri, nema um verði að ræða frekari inngreiðslu bænda til sjóðsins. Jafnframt þessu er gert ráð fyrir að lækkaðar verði greiðslur til Bændasamtakanna. Enn hefur ekki verið gengið frá nýjum búnaðarlagasamningi sem fellur úr gildi í lok næsta árs. Gert hafði verið ráð fyrir að slíkur samningur hefði þegar verið endurskoðaður og framlengdur í tvö ár. Mjög bagalegt er við rekstur nauðsynlegrar búfjárræktar, héraðs- og landsþjónustu, að frá þessari samningsgerð hafi ekki verið gengið. Áréttað er að til þeirra verka verði gengið hið fyrsta.
    1. minni hluti telur nauðsynlegt að vekja athygli á því að vegna aðildarumsóknar að ESB er ljóst að vinnuálag í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og stofnunum þess mun aukast. Mörg álitaefni sem einmitt snerta verksvið ráðuneytisins verða í forgrunni og hefur m.a. komið fram hjá ráðherra að gera þurfi ráð fyrir mikilli vinnu af þeim ástæðum. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri fjárveitingu til þeirra verkefna í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti fremur en öðrum ráðuneytum en eingöngu vísað til almenns fjárlagaliðar á vettvangi utanríkisráðuneytisins. Auljóslega þarf að svara á hvern veg verður tekið á því máli innan sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis í ljósi þess umfangsmikla starfs sem fyrirsjáanlega verður á herðum þess vegna aðildarumsóknar að ESB.
    1. minni hluti tók þátt í skiptingu safnliða og gerir ekki ágreining við þá niðurstöðu sem þar fékkst. Unnið var innan þeirra fjárveitinga sem áætlaðar voru til þessa viðfangsefnis. Sérstaklega er vakin athygli á þeirri stefnumótun sem fram kemur í þessum úthlutunum varðandi viðfangsefnið Beint frá býli og áréttar minni hlutinn mikilvægi þessa verkefnis. Hins vegar er það álit 1. minni hluta að áfram eigi að halda með þá sjóvinnukennslu sem Alþingi hefur stutt við með fjárveitingum og að veita eigi til þess svipaða fjárhæð og á yfirstandandi ári. Er hér um að ræða vinsælt og eftirsótt verkefni á meðal grunnskólanema sem er liður í því að skapa ungu fólki tækifæri til þess að kynnast starfi við þennan undirstöðuatvinnuveg, jafnframt því að vera holl og örvandi fræðsla um hafið og lífríki þess.

Alþingi, 17. nóv. 2009.

Einar K. Guðfinnsson,
Jón Gunnarsson.




Fylgiskjal XII.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (04 Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti).

Frá 2. minni hluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar.



    Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar fjallað um þá þætti fjárlagafrumvarpsins sem eru á málefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Vísar 2. minni hluti til álits meiri hlutans er varðar gestalista og umsóknir til nefndarinnar.
    Almennt má segja varðandi niðurskurð og hagræðingu að 2. minni hluti telur það miður að ekki sé lagt fram samhliða fjárlagafrumvarpinu áætlun til lengri tíma, til að mynda næstu þriggja ára. Þannig mætti setja sér raunverulegri markmið um sparnað í ríkisrekstri, sparnað sem væri raunverulegur og varanlegur. Sömu gagnrýni vill 2. minni hluti setja fram varðandi greinargerð með einstökum fjárlagaliðum en þar skortir á að sýnt sé fram á hinn raunverulega sparnað, þ.e. hvernig á að ná fram einstökum lækkunum hjá mismunandi stofnunum.
    Þá bendir 2. minni hluti á að einstakir fjárlagaliðir virðast ekkert hafa með ríkisrekstur að gera og má þar nefna Fóðursjóð sem hækkar úr 115 millj. kr. 2009 í 1.400 millj. kr. 2010, verðmiðlun landbúnaðarvara og Búnaðarsjóð. Það er mat 2. minni hluta að eðlilegra væri að sjóðir sem eru að öllu leyti gegnumstreymissjóðir, þar sem tekjur standa undir útgjöldum, séu betur geymdir hjá viðkomandi atvinnugrein en ríkisvaldinu. Fjárlögin gætu verið gegnsærri með þeim hætti og endurspeglað betur raunverulegan rekstur ríkisins.
    Varðandi einstök verkefni tekur 2. minni hluti undir álit meiri hlutans um verkefnið Bændur græða landið. Það er mat 2. minni hluta að það sé verðugt verkefni ríkisvaldsins að koma meira að einstökum landgræðsluverkefnum þar sem fjölmargir aðilar hafa lagt umtalsverða sjálfboðavinnu og fjármuni til slíkra verkefna.
    Varðandi skiptingu safnliðarins 04-190-1.90 gerir 2. minni hluti, þrátt fyrir að skortur sé á markvissri stefnu í útdeilingu fjármuna til einstakra verkefna, ekki athugasemdir við niðurstöðuna sem fram kemur í fylgiskjali með áliti meiri hluta nefndarinnar.

Alþingi, 16. nóv. 2009.

Sigurður Ingi Jóhannsson.




Fylgiskjal XIII.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (07 Félags- og tryggingamálaráðuneyti).

Frá meiri hluta félags- og tryggingamálanefndar.



    Félags- og tryggingamálanefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar fjallað um þann hluta fjárlagafrumvarpsins sem er á málefnasviði nefndarinnar, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, og bréf fjárlaganefndar, dagsett 19. október 2009.
    Á fund nefndarinnar komu fulltrúar félags- og tryggingamálaráðuneytisins Sturlaugur Tómasson, Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, Vilborg Ingólfsdóttir og Ágúst Þór Sigurðsson.
    Heildarútgjöld félags- og tryggingamálaráðuneytis og stofnana þess árið 2010 eru áætluð um 139.283 m.kr. á rekstrargrunni. Frá dragast sértekjur að fjárhæð 2.313 m.kr. en þær nema 1,7% af heildargjöldum ráðuneytisins. Útgjöld ráðuneytisins hækka um 19.373 m.kr. frá því sem annars hefði orðið vegna verkefna á sviði öldrunarmála, tryggingamála og starfsendurhæfingar sem flytjast frá heilbrigðisráðuneyti.
    Rekstrargjöld ráðuneytisins að frádregnum sértekjum eru áætluð 33.132 m.kr. og hækka um 1.542,7 m.kr. frá fjárlögum þessa árs. Vegna áforma um hagræðingu í rekstrarkostnaði ríkissjóðs eru rekstrarfjárveitingar flestra stofnana og verkefna sem heyra undir ráðuneytið lækkaðar um alls 1.651,2 m. kr. Við samdráttinn var forgangsraðað svo að skerðing á fjárveitingu er mismikil eftir stofnunum og verkefnum. Gert er ráð fyrir auknum útgjaldaskuldbindingum í rekstri sem nema 2.113 m.kr. Neyslu- og rekstrartilfærslur hækka um 4.549 m.kr. og verða 101.050 m.kr. en eru 96.502 m.kr. í fjárlögum ársins 2009. Gert er ráð fyrir að lækka útgjöld um 6.800 m.kr. sem jafngildir 7,2% lækkun frá fjárlögum síðasta árs. Vegur þar þyngst 4.400 m.kr. lækkun í almannatryggingakerfi auk 12.330 m.kr. hækkunar til Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna nýrrar spár um að atvinnuleysi aukist meira en áður var gert ráð fyrir. Greiðslur ráðuneytisins samkvæmt samningi við samtök, einkaaðila og sveitarfélög um rekstrarverkefni eru samtals áætlaðar um 4.037 m.kr. árið 2010. Það svarar til 2,9% af heildargjöldum ráðuneytisins á árinu 2010.
    Nefndin hefur tekið til umfjöllunar og meðferðar þann hluta fjárlagafrumvarpsins sem snýr að málefnasviði hennar og áréttar meiri hlutinn mikilvægi þess að velferðarkerfið sé sem skilvirkast og í útgjaldasamdrætti sé vörður staðinn um þá sem minnst mega sín. Meiri hlutinn telur rétt að leitað verði leiða til að gera stjórnsýsluna skilvirkari, til að mynda með sameiningu stofnana og verkefna og flutningi verkefna til sveitarfélaga. Þá áréttar meiri hlutinn að samningum við sveitarfélögin þurfi að ljúka sem fyrst enda verði verkefni ekki færð til þeirra án þess að tekjustofnar fylgi. Einnig telur meiri hlutinn rétt að gengið verði endanlega frá málefnum og verkaskiptingu Tryggingastofnunar ríkisins og Sjúkratrygginga Íslands sem enn virðist ekki vera að fullu frágengin. Óvissa um verkaskiptingu dregur úr gagnsæi auk þess sem hætta er á að óvissa skapist um gjaldafærslur sem leiði til aukins kostnaðar.
    Nefndin hefur kynnt sér þær tillögur um samdrátt í útgjöldum sem liggja fyrir. Ljóst er að til að lækka útgjöld félags- og tryggingamálaráðuneytis þarf að fara inn í bótakerfið enda er það langstærsti hluti útgjaldanna. Meiri hlutinn telur mikilvægt að við aðhald og samdrátt í útgjöldum sé þess gætt að draga ekki úr nauðsynlegri velferðarþjónustu.
    Nefndin kynnti sér lækkanir á einstökum liðum sem lækka mikið frá fjárlögum þessa árs, t.d. lið 07-983-1.11, Bætur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sem lækkar um 35,9% og lið 07-827-1.28, Vasapeningar ellilífeyrisþega, sem lækkar um 28,5%. Meiri hlutinn áréttar að ekki er um að ræða tillögur um lækkun til bótaþeganna heldur er verið að lækka liðina til samræmis við raunveruleg útgjöld af þeim. Liður 07-825-1.15, Umönnunargreiðslur, lækkar um 24,6% og er þar um skerðingu að ræða, bæði er bótafjárhæðin lækkuð en einnig er það nýmæli að leggja skal fram reikninga fyrir útlögðum kostnaði. Þarna er um töluverða breytingu að ræða sem hagsmunaaðilar hafa gagnrýnt. Þetta er eini fjárlagaliðurinn sem meiri hlutinn leggur til að fjárlaganefnd veiti sérstaka athygli og kanni hvort hægt sé að draga úr skerðingu þessara bóta.
    Meiri hlutinn lýsir yfir áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum fæðingarorlofs. Endanleg útfærsla hefur ekki verið kynnt en meiri hlutinn leggur áherslu á að við útfærslu þeirrar útgjaldalækkunar sem fyrirhuguð er verði reynt að gæta að jafnréttissjónarmiðum sem liggja til grundvallar fæðingarorlofskerfinu. Meiri hlutinn leggur áherslu á að orlofsmánuðum verði ekki fækkað og að litið verði til þess að verja bætur þeirra sem hafa lægstar tekjur. Þá telur meiri hlutinn mikilvægt að aðgerðir verði tímabundnar og gangi þá til baka þegar fjárhagur ríkissjóðs leyfir.
    Fjárbeiðnir, sem sendar voru til umsagnar félags- og tryggingamálanefndar vegna safnliðarins 07-999-1.90, voru samtals 52 og komu 24 aðilar á fund nefndarinnar. Meiri hlutinn telur rétt að vekja athygli á því að Aflið er skráð með tvær umsóknir en þær upplýsingar fengust á fundi að einungis ein umsókn ætti að vera til staðar. Meiri hlutinn gerir að tillögu sinni að 31 aðili fái styrk og er í flestum tilfellum um að ræða lækkun um 20% til einstakra aðila frá styrk þessa árs. Þó er gerð tillaga um hækkun styrks til nokkurra aðila vegna sérstakrar stöðu í samfélaginu, aðkallandi verkefna og aukins fjölda beiðna um aðstoð til hjálparsamtaka. Meiri hlutinn gerir almennt ekki tillögu um styrk til nýrra verkefna nema sérstök sjónarmið liggi að baki eða til að gæta dreifingar fjármuna til málaflokka.
    Hjartaheill sóttu um styrk en félagið er með fasta fjárveitingu hjá heilbrigðisráðuneyti og tvær umsóknir um fé af safnlið þess ráðuneytis. Meiri hlutinn telur öll erindi félagsins eiga heima hjá heilbrigðisráðuneyti. Samfés sækir einnig um styrk til nefndarinnar og telur meiri hlutinn umsókn þeirra fremur heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneyti.
    Múlalundur og Sjálfsbjörg sækja um styrk vegna viðgerða og viðhalds á húsnæði en meiri hlutinn telur þessi verkefni eiga heima undir lið 07-795-5.21, Framkvæmdarsjóður fatlaðra, viðhald fasteigna, en leggur þó til að Sjálfsbjörg fái 2 m.kr. styrk í önnur verkefni.
    Meiri hlutinn áréttar jafnframt þá skoðun sína að verkefni tengd starfsendurhæfingu eigi heima undir sérstökum lið ráðuneytisins, 07-988-1.10. Stýring á ráðstöfun fjármuna í verkefni af þessu tagi eigi að vera hjá ráðuneyti þar sem fram fer faglegt mat á verkefnum og jafnræðis er gætt um dreifingu eftir landshlutum og verkefnum auk þess sem fylgt er stefnumörkun stjórnvalda og þeirri hugmyndafræði sem mótuð er í ráðuneytinu.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að veitt sé nægilegt fjármagn í rekstur Vímulausrar æsku sem sækir um 13,5 m.kr. styrk til nefndarinnar. Ekki er lögð til styrkveiting en því beint til fjárlaganefndar og félags- og tryggingamálaráðuneytis að veita fé til félagsins af lið 07-999- 1.55 sem ætlaður er til átaks í vímuvarnamálum.
    Alþjóðahúsið ehf. sækir um 20,0 m.kr. en nokkur óvissa virðist vera um áframhaldandi þjónustusamning Reykjavíkurborgar við félagið sem hefur fengið stóran hluta rekstrarfjár síns frá borginni. Meiri hlutinn telur rétt að félags- og tryggingamálaráðuneytið leiti leiða til að virkja sveitarfélög í þjónustu við innflytjendur og fólk af erlendum uppruna. Meiri hlutinn telur Fjölmenningarsetrið á Ísafirði vera mikilvægan þátt í að samræma og efla slíka þjónustu og beinir þeim tilmælum til fjárlaganefndar og félags- og tryggingamálaráðuneytis að setrinu verði tryggt fjármagn til að halda úti starfsemi sinni. Þá áréttar meiri hlutinn að hann telji ekki rétt að úthluta sveitarfélögum styrkjum af safnliðum.
    Tillögur meiri hlutans um skiptingu safnliðarins koma fram í sérstöku fylgiskjali.

Alþingi, 12. nóv. 2009.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, varaform.
Árni Þór Sigurðsson,
Magnús Orri Schram,
Ólafur Þór Gunnarsson,
Lilja Rafney Gunnarsdóttir,
Guðmundur Steingrímsson, með fyrirvara.




Fylgiskjal XIV.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (08 Heilbrigðisráðuneyti).

Frá meiri hluta heilbrigðisnefndar.



    Heilbrigðisnefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar fjallað um þann kafla fjárlagafrumvarpsins sem snýr að málefnasviði hennar og gert tillögu að skiptingu á einstökum safnliðum, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, og bréf fjárlaganefndar frá 19. október 2009.
    Á fund nefndarinnar komu Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra, Dagný Brynjólfsdóttir og Hrönn Ottósdóttir af fjármálasviði heilbrigðisráðuneytisins, Halldór Jónsson og Þorvaldur Ingvarsson frá Sjúkrahúsinu á Akureyri, Svanhvít Jakobsdóttir og Jónas Guðmundsson frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Björn Zoëga, starfandi forstjóri Landspítalans, Árni Sverrisson og Ásgeir Thorlacius frá St. Jósefsspítala, Guðjón Brjánsson, Ásgeir Ásgeirsson og Steinunn Sigurðardóttir frá Heilbrigðisstofnun Akraness, Magnús Skúlason frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Sigríður Snæbjörnsdóttir og Elís Reynarsson frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Einnig átti nefndin símafund með Einari Rafni Haraldssyni, Stefáni Þórarinssyni, Lilju Aðalsteinsdóttur, Þórhalli Harðarsyni og Kjartani Einarssyni hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands.
    Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að heildarútgjöld ráðuneytisins séu áætluð um 96.648 m.kr. á rekstrargrunni, sértekjur 5.310 m.kr. sem nemi 5,5% af heildargjöldum ráðuneytisins og gjöld umfram tekjur áætluð 93.339 m.kr. Einnig kemur fram að 92.881 m.kr verði fjármögnuð með beinu framlagi úr ríkissjóði og 457 m.kr. innheimtar af ríkistekjum. Við nánari skoðun kom í ljós innsláttarvilla í greinargerð og heildarútgjöld nema því 98.648 m.kr., sbr. sundurliðun fjármála ríkisaðila í A-hluta, en ekki 96.648 m.kr. eins og prentast hafði. Nema sértekjur ráðuneytisins því 5,38% af heildarútgjöldum þess.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir töluverðri yfirfærslu verkefna frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Nemur lækkun útgjalda heilbrigðisráðuneytis vegna reksturs öldrunarheimila 18.943,5 m.kr. og 431,5 m.kr. vegna sjúkratrygginga, þ.e. greiðslum daggjalda fyrir hjúkrunarrými. Meiri hluti nefndarinnar leggur áherslu á að vandað verði til þessara skipulagsbreytinga svo yfirfærsla allrar öldrunarþjónustu til sveitarfélaga megi takast vel.
    Í forsendum fjárlagafrumvarpsins kemur fram að ráðuneytum og stofnunum sé ætlað að draga saman rekstur sinn um 10% frá fjárlögum 2009 til þess að unnt sé að ná þeirri áætlun sem sett hefur verið fram í efnahagsmálum, en ætlunin er að ná jöfnuði í ríkisfjármálum á næstu þremur árum. Nefndin fjallaði ítarlega um fyrirhugaðan niðurskurð í málaflokknum en í stað markmiða um 10% lækkun hjá stjórnsýslu- og eftirlitsstofnunum er velferðarstofnunum og velferðarþjónustu hlíft og niðurskurðarkröfur þar vægari eða 5% og falla sjúkrahúsin þar undir. Nemur lækkunin hjá heilbrigðisráðuneytinu og stjórnsýslustofnunum þess því 6,9% að raungildi.
    Heildarfjárveiting til sjúkrahúsa og sérstæðrar sjúkrahúsþjónustu lækkar um 2.485,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar almennar verðlagsbreytingar og hækkun tryggingagjalds af launaveltu. Draga á úr útgjöldum málaflokksins sem nemur 2.653,7 m.kr. á verðlagi gildandi fjárlaga. Vegur þar þyngst 1.965,5 m.kr. lækkun til Landspítala. Gert er ráð fyrir 919,6 m.kr. lækkun til heilbrigðisstofnananna og 272,8 m.kr. til heilsugæslunnar.
    Í hagræðingaraðgerðum ársins 2009 var haft að leiðarljósi að ná fram eins miklum sparnaði og mögulegt var án þess að það bitnaði á öryggi og gæðum þjónustunnar. Aðgerðirnar fólust m.a. í því að í stað uppsagna starfsmanna voru laun lækkuð, ekki ráðið í stöður sem losnuðu né heldur í afleysingar og sólarhringsdeildum var breytt í dagdeildir. Fram kom á fundum nefndarinnar að kostnaður hefði hins vegar aukist við innkaup á lyfjum og vörum vegna gengisþróunar og hefur það vegið þungt í rekstri einstakra stofnana. Innri skipulagsbreytingar hafa verið gerðar á flestum stofnunum til að ná fram sparnaði og hjá þeim flestum verður vart lengra komist innan þess ramma sem leiðarljós yfirstandandi árs sagði til um. Þrátt fyrir vægari kröfu um niðurskurð í velferðarþjónustu en að jafnaði er gerð til annarrar opinberrar þjónustu verður erfitt að veita óskerta þjónstu og í raun nær ógerningur hjá mörgum stofnunum. Ljóst er, líkt og fram kom hjá forsvarsmönnum sjúkrahúsanna á fundum nefndarinnar, að mikilvægt er að skoða skipulagningu og endurmat á þjónustu almennt í landinu og að teknar verði ákvarðanir um hvaða þjónustu skuli veita á hverju svæði. Enn fremur kom fram í máli þeirra að slík heildarsýn væri nauðsynleg og í reynd forsenda fyrir gæðum þjónustunnar að farið yrði í heildstæðar skipulagsbreytingar þar sem ekki væri unnt að skera meira niður á næstu árum án þess að það kæmi niður á þjónustu við sjúklinga.
    Nefndin fékk á sinn fund fulltrúa frá heilbrigðisráðuneytinu til að kynna skipulagsbreytingar sem ráðuneytið er að vinna að, þ.e. svæðisbundna sameiningu heilbrigðisstofnana og hugmyndir að frekari sameiningum og samstarfsverkefnum heilbrigðisstofnana. Sérstök kynning var á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu og samstarfi og verkaskiptingu milli Landspítala St. Jósefsspítala, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Undirbúningsvinna hefur staðið yfir um nokkurn tíma en niðurstöður liggja enn ekki fyrir. Af málflutningi forstöðumanna viðkomandi stofnana mátti heyra að beðið er með nokkurri óþreyju eftir ákvörðun heilbrigðisráðherra í þessu máli þar sem niðurstaðan kemur til með að hafa mikil áhrif á rekstraráætlanir stofnananna á næsta ári. Fyrirhugaðar skipulagsbreytingar eiga sér fyrirmynd í skýrslu sem ber heitið „Frá orði til athafna – Radíusverkefnið“ sem Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítalans, vann ásamt fleiri sérfræðingum og felur í sér tímasetta aðgerðaráætlun um samstarf og markvissa verkaskiptingu milli heilbrigðisstofnana. Byggist áætlunin á þeim markmiðum að almenn heilbrigðisþjónusta verði veitt í nærumhverfi sjúklings, sérhæfð þjónusta verði skilgreind sérstaklega á fáum stöðum, aðgengi að sérhæfðri þjónustu sé tryggt með greiðum og öruggum sjúkraflutningum, verkaskipting sjúkrahúsa skilgreind og þjónusta samræmd.
    Telur meiri hlutinn ljóst að til þess að unnt sé að mæta fyrirhuguðum niðurskurði næstu ára verði að fara í gagngerar skipulagsbreytingar og skoða heildstætt framtíðarskipan heilbrigðisþjónustu á landinu öllu. Eingöngu með slíku endurmati er mögulegt að draga úr útgjöldum málaflokksins og halda uppi gæðum þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Telur meiri hlutinn að skoða þurfi alla starfsemi heilbrigðisþjónustunnar, þ.e. hvort tveggja hina eiginlegu heilbrigðisþjónustu sem og stjórnsýslustofnanir. Meiri hlutinn telur að í því sambandi verði þó að hafa í huga viðkvæma stöðu lítilla og landfræðilega einangraðra öldrunarstofnana sem fá á sig fækkun hjúkrunarrýma samkvæmt mati, auk kröfu um hagræðingu í rekstri en þessar stofnanir njóta ekki samlegðaráhrifa, hvorki vegna fjarlægðar við aðrar heilbrigðisstofnanir né heldur samrekstrar hjúkrunar- og dvalarheimila. Getur hagræðingarkrafan því valdið því að ekki verði rekstrargrundvöllur til þess að halda úti þeirri þjónustu sem nauðsynleg er á svæðinu.
    Nefndin ræddi uppbyggingu heilsugæslunnar hér á landi, nýtingu hennar og samspil við sérfræðiþjónustu. Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að gera átak í eflingu heilsugæslunnar og jafnframt að huga að tilvísunarkerfi til sérfræðiþjónustu að norrænni fyrirmynd. Skortur á sérfræðimenntuðum heilsugæslulæknum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, hefur leitt til þess að fjöldi manns hefur ekki fastan heimilislækni og leitar því oftar en ekki beint til sérfræðinga utan heilsugæslunnar. Fram kom að ráðist hefur verið í miklar niðurskurðaraðgerðir hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til að mæta niðurskurðarkröfu ríkisins og er áætlað að þær skili um 370 m.kr. á ársgrundvelli. Má þar helst nefna launalækkanir og fækkun starfa á sviði hjúkrunar og innan yfirstjórnar og stjórnsýslu. Fram kom á fundi nefndarinnar að heilsugæslan hefur takmarkaða möguleika til að hagræða í fasteignamálum þar sem mikill hluti starfsemi þeirra fer fram í leiguhúsnæði með óuppsegjanlegum 25 ára verðtryggðum húsaleigusamningum. Uppsafnaður halli reynist heilsugæslunni jafnframt erfiður þar sem mikill kostnaður fer í að greiða dráttarvexti. Frekari niðurskurðaraðgerðir leiða því óhjákvæmilega til uppsagna og skerðingar á þjónustu. Meiri hlutinn bendir á í þessu sambandi að rekstrarstaða heilbrigðisstofnana er þar að auki mismunandi þegar litið er til uppsafnaðs hallareksturs frá fyrra ári eða árum, þar má sérstaklega nefna Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og leggur áherslu á að tekið verði á þessum vanda í frumvarpi til fjáraukalaga.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að þrátt fyrir þann gífurlegan efnahagsvanda sem þjóðin stendur frammi fyrir þá verði að gæta þess að verja velferðarþjónustuna, þ.e. félagsþjónustu sveitarfélaga, heilsugæslu og öryggis- og bráðaþjónustu. Enn fremur verður að hafa í huga að aukið ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, er líklegur fylgifiskur djúprar efnahagslægðar. Til þess þarf að taka sérstakt tillit í heilbrigðisþjónustu á komandi árum.
    Sjúkrahús landsins hafa ráðist í gífurlegar hagræðingar til að mæta þeim kröfum sem gerðar voru vegna þessa fjárlagaárs og fyrirsjánlega verða á næstu árum. Einsýnt er að enn frekari niðurskurður muni bitna á þjónustu við sjúklinga frá því sem nú er. Þá bendir nefndin á að nokkur óvissa ríki um rekstur „kragasjúkrahúsanna“ þar sem ekki er búið að ganga endanlega frá fyrirhuguðum skipulagsbreytingum. Ljóst er að frekari sparnaði þarf að ná með skipulagsbreytingum, styrkingu svæða og eflingu svæðisbundinnar þjónustu, verkaskiptingu milli stofnana, samvinnu og rafrænum samskiptum svo sem átaki í að taka upp rafræna sjúkraskrá, auka notkun ódýrari lyfja og styðja innlenda framleiðslu. Áréttar meiri hlutinn mikilvægi þess að standa vörð um gæði heilbrigðisþjónustunnar og öryggi sjúklinga og telur að leitast skuli við að vernda störf eftir því sem kostur er.
    Mikið hefur verið rætt um að breyta skuli vinnulagi þingsins við undirbúning og gerð fjárlaga. Meiri hlutinn leggur áherslu á að við endurskoðun þess verði afgreiðslu safnliða breytt. Telur meiri hlutinn að í stað safnliða sé æskilegt að styrkja til þess bært sjóðakerfi til að taka við núverandi safnliðum. Við afgeiðslu fjárlaga verði tryggt að sjóðirnir geti staðið undir þeim verkefnum sem þeim er ætlað að sinna, ef ekki, þá leitar afgeiðsla styrkbeiðna aftur í sama farið. Úthlutun úr viðkomandi sjóðum ætti að fara eftir faglegu mati og forsendum sem ekki er til staðar hjá fagnefndum í dag. Þrátt fyrir framangreinda galla fer meiri hlutinn að núverandi verklagi og leggur til skiptingu safnliðs 08-399-1.90, samkvæmt beiðni fjárlaganefndar. Við afgreiðslu safnliða innan fjárlaganefndar telur meiri hlutinn að skoða verði sérstaklega stöðu Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, Ljósið og Mænuskaðastofnunar Íslands. Meiri hlutinn telur rétt að vísa erindi Miðstöðvar foreldra og barna til heilbrigðisráðuneytisins til úrlausnar enda er um að ræða fyrirtæki sem er ætlað að sinna brýnum meðferðar- og forvarnarverkefnum, þjónustu sem meiri hlutinn telur mikilvægt að verði aðgengileg fyrir starfsmenn heilsugæslu og skóla.
    Álitinu fylgir tillaga nefndarinnar um skiptingu safnliða.
    Þuríður Backman og Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifa undir álitið með fyrirvara vegna setu í fjárlaganefnd. Valgerður Bjarnadóttir skrifar undir álitið með fyrirvara.

Alþingi, 13. nóv. 2009.

Þuríður Backman, form., með fyrirvara,
Sigmundur Ernir Rúnarsson, með fyrirvara,
Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Lilja Rafney Magnúsdóttir,
Valgerður Bjarnadóttir, með fyrirvara,
Anna Pála Sverrisdóttir.




Fylgiskjal XV.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (08 Heilbrigðisráðuneyti).

Frá 1. minni hluta heilbrigðisnefndar.



    Heilbrigðisnefnd hefur fjallað um heilbrigðismálakafla fjárlagafrumvarpsins og var að venju einnig beðin um tilllögu að skiptingu á einstökum safnliðum.
    Á fund nefndarinnar komu Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra, Dagný Brynjólfsdóttir og Hrönn Ottósdóttir af fjármálasviði heilbrigðisráðuneytisins, Halldór Jónsson og Þorvaldur Ingvarsson frá Sjúkrahúsinu á Akureyri, Svanhvít Jakobsdóttir og Jónas Guðmundsson frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Björn Zoëga, starfandi forstjóri Landspítala, Árni Sverrisson og Ásgeir Thorlacius frá St. Jósefsspítala, Guðjón Brjánsson, Ásgeir Ásgeirsson og Steinunn Sigurðardóttir frá Heilbrigðisstofnun Akraness, Magnús Skúlason frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Sigríður Snæbjörnsdóttir og Elís Reynarsson frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Einnig átti nefndin símafund með Einari Rafni Haraldssyni, Stefáni Þórarinssyni, Lilju Aðalsteinsdóttur, Þórhalli Harðarsyni og Kjartani Einarssyni hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands.
    Í máli sumra gesta kom fram almenn gagnrýni á að undirbúningur fyrir fjárlagagerðina hafi verið ómarkviss og óljós. Ákvarðanafælni hafi tafið og truflað eðlilegan undirbúning. Tekur 1. minni hluti undir framangreinda gagnrýni. Virðist sem sumarið og haustið hafi ekki verið nýtt sem skyldi til ákvarðanatöku almennt hjá fyrrum heilbrigðisráðherra, Ögmundi Jónassyni. Glöggt mátti sjá merki þess þegar í þingbyrjun er þingmálaskrá heilbrigðisráðherra var lögð fram. Í fylgiskjali með stefnuræðu forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, 5. október 2009 kemur fram hve mörg og hvaða mál ráðuneytin öll áætla að flytja á haustþingi og vorþingi. Í fylgiskjalinu kemur fram að ráðuneytin áætla að flytja að meðaltali tólf mál á haustþingi og fjögur mál á vorþingi. Heilbrigðsráðuneytið áætlar hins vegar einungis að flytja tvö mál á haustþingi og fimm á vorþingi. Vekur þetta athygli sökum þess hvers eðlis málin tvö sem flutt verða á haustþingi eru, en þau eru annars vegar endurflutningur á frumvarpi til laga um heilbrigðisstarfsmenn, sem er samræming og endurskoðun, og hins vegar frumvarp um flutning dánarmeinaskrár frá Hagsstofu til landlæknis. Hefði mátt búast við talsvert öflugri og skýrari tillögum í þessum málaflokki í ljósi þess að gerð er mikil hagræðingarkrafa til heilbrigðisþjónustunnar nú um þessar mundir.
    Í forsendum fjárlagafrumvarpsins kemur fram að ráðuneytin og stofnanir þeirra eiga að skera rekstur niður um 10% frá fjárlögum 2009 nema heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti sem eiga að skera niður um 5% og menntamálaráðuneytið um 7%. Stjórnsýslustofnanir framangreindra ráðuneyta eiga að skera niður um 10%. Nefndin fjallaði um fyrirhugaðan niðurskurð í heilbrigðsmálum og ljóst er að niðurskurður hjá heilbrigðisráðuneytinu og stjórnsýslustofnunum þess er 6,9% að raungildi.
    Heildarfjárveiting til sjúkrahúsa og sérstæðrar sjúkrahúsþjónustu lækkar um 2.485,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar almennar verðlagsbreytingar og hækkun tryggingagjalds af launaveltu. Draga á úr útgjöldum málaflokksins sem nemur 2.653,7 m.kr. á verðlagi gildandi fjárlaga. Vegur þar þyngst 1.965,5 m.kr. lækkun til Landspítala. Gert er ráð fyrir 919,6 m.kr. lækkun til heilbrigðisstofnana og 272,8 m.kr. til heilsugæslunnar. 1. minni hluti áréttar að þótt hagræðingarkrafa sé gerð á Landspítala verði að tryggja að hann geti áfram sinnt sínu mikilvæga hlutverki sem meginbráðasjúkrahús landsins og það sjúkrahús sem er í stakk búið til að veita sérhæfðustu þjónustuna á flestum sviðum heilbrigðiskerfisins.
    Vegna almennrar niðurskurðarkröfu á velferðarþjónustu verður erfitt að veita óskerta þjónustu og í raun nær ógerningur. Því er mikilvægt að endurskipuleggja þjónustuna en skera ekki niður flatt. Gera þarf skipulagsbreytingar og ákveða hvaða þjónustu skuli veita hvar og hver skuli veita hana.
    Fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins kynntu hugmyndir um svæðisbundna sameiningu heilbrigðisstofnana og aukin samstarfsverkefni heilbrigðisstofnana. Kynnt var vinnuskjal um verkefnið „Frá orðum til athafna – Radíusverkefnið“, sjá fylgiskjal nr. 1, sem Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítala, vann ásamt sérfræðingum um skipulag heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu, samstarf og verkaskiptingu milli Landspítala, St. Jósefsspítala, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Heilbrigðisstofnunarinnar á Akranesi sem verður, ásamt sjö öðrum heilbrigðisstofnunum, hluti af Heilbrigðisstofnun Vesturlands 1. janúar 2010. Skýrslan hefur legið fyrir um skeið en heilbrigðisráðherra hefur ekki enn tekið pólitíska afstöðu um hvort fara eigi að tillögunum sem þar voru settar fram. Forstöðumenn viðkomandi stofnana gagnrýndu seinaganginn og ákvarðanafælnina með réttu því niðurstaðan kemur til með að hafa mikil áhrif á rekstraráætlanir stofnana þeirra. Því er svo komið að mikil óvissa ríkir um hvernig svokölluð kragasjúkrahús eigi að mæta niðurskurðarkröfunni sem nú er gerð. Pólitísk ákvarðanafælni virðist hafa einkennt störf heilbrigðisráðherra í sumar og haust í aðdraganda fjárlagagerðarinnar eins og glöggt má sjá í viðtali í Fréttablaðinu 1. október er þáverandi heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, hljóp úr ríkisstjórninni. Svo segir í Fréttablaðinu: „Ögmundur segist skilja heilbrigðisráðuneytið eftir í góðum höndum þess starfsfólks sem þar vinnur, sem og í heilbrigðisgeiranum. Spurður út í þá stefnumörkun sem hann skilur eftir sig segir hann hana aðallega lúta að vinnubrögðum.“ Og síðar er haft eftir ráðherranum: „Stefnumótunin í þessu ráðuneyti og stofnunum þess er að verulegu leyti óháð ríkisstjórnum og ráðherrum. Hún snýr að framtíðarskipan heilbrigðismála í landinu. Ég hef hins vegar getað komið að málum sem lúta að vinnubrögðum og áherslum.“ Hér heldur ráðherrann því fram að stefnumörkunin sé óháð ráðherranum. Þessi fullyrðing stenst enga skoðun og er kolröng. Hins vegar sýnir þessi fáheyrða yfirlýsing að skort hefur pólitískt þrek til að taka ákvarðanir um forgangsröðun í málaflokknum í aðdraganda fjárlagagerðarinnar. Í kjölfarið gagnrýndi Hulda Gunnlaugsdóttir harkalega í fjölmiðlum áform um flatan niðurskurð í heilbrigðisþjónustunni og sagði í Morgunblaðinu: „Það liggur því fyrir aðgerðaáætlun með sparnaðartölum sem hægt er að vinna eftir og draga þannig úr þeirri þjónustuskerðingu sem ella þyrfti að ráðast í. En ef farið verður í flatan niðurskurð án þess að ráðast í þær hagræðingaraðgerðir sem við höfum lagt til þá er það hættulegt …“ Um flatan niðurskurð sagði hún: „Það er auðveldasta leiðin en þá er ekki tekið á vandanum. Það þarf að gera stærri breytingar á þjónustu spítalanna og auðvitað er Landspítalinn þar ekki undanskilinn. En ef ráðist er í uppsagnir á 450–500 manns á Landspítalanum þá hefur það áhrif á öryggisnetið.“
    Merki um að skort hafi ákvarðanatöku og vönduð vinnubrögð í aðdraganda fjárlagagerðarinnar mátti einnig greina í máli nokkurra forstöðumanna sjúkrahúsa sem komu á fund nefndarinnar, sjá einnig fylgiskjal nr. 2. Í skjalinu er m.a. rakið að síðla júlímánaðar hafi Heilbrigðisstofnun Suðurlands verið tilkynnt um 23,7 m.kr. viðbótarlækkun fjárheimilda á þessu ári. Þeirri lækkun skyldi fyrst og fremst ná með lækkun hæstu launa og kjarajöfnun. Tekjuhæstu menn stofnunarinnar eru þeir læknar sem sinna flestum vöktum og var því ákveðið að segja upp núverandi vaktafyrirkomulagi flestra lækna stofnunarinnar. Þær breytingar gátu ekki komið til framkvæmda fyrr en 1. nóvember í fyrsta lagi ef þeim hefði verið sagt upp fyrir 1. ágúst. Enn fremur kemur eftirfarandi fram í fylgiskjalinu: „Á fundi undirritaðs [forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands] með fyrrverandi heilbrigðisráðherra í lok júlí óskaði hann eftir, að framangreindar uppsagnir á vaktafyrirkomulagi lækna yrðu ekki sendar út fyrir 1. ágúst, heldur reynt að leita annarra leiða í samráði við stjórnendur stofnunarinnar.“ Síðar segir: „Framangreind viðbótarlækkun fjárveitinga á þessu ári hefur hinsvegar ekki verið dregin til baka og kemur fram í frv. til fjáraukalaga 2009. Þessu til viðbótar kom fram í frumvarpinu viðbótarlækkun um 6. m.kr., sem stofnuninni hafði ekki verið tilkynnt um áður.“
    Eins og framangreind lýsing staðfestir er undirbúningur fjárlaga fyrir næsta ár ómarkviss og óljós. Bæði eru fyrri tilmæli dregin til baka, bætt er við niðurskurðartillögum seint á árinu og það sem er alvarlegast og ámælisvert er að ekki er búið að skilgreina verkefni Landspítalans og kragasjúkrahúsanna þrátt fyrir að tillögur um slíkt liggi fyrir og hafi gert um nokkurt skeið. 1. minni hluti bendir einnig á athyglisverðar hugmyndir um skipulagsbreytingar til hagræðingar í heilbrigðisþjónustu sem fram koma í fylgiskjali nr. 1. Þar er vikið að því að ef offramboð er á þjónustu þarf að draga úr slíkri þjónustu, ekki flytja hana til. Sem dæmi má nefnda ýmsa sérfræðiþjónustu. Einnig er vikið að möguleikum á samstarfi heilbrigðisstofnana og hjúkrunarheimila, en á þjónustusvæði Heilbrigðisstofnunar Suðurlands eru t.d. sjö hjúkrunarheimili rekin af öðrum aðilum sem eru með hátt í sambærilegan rekstrarkostnað og heilbrigðisstofnunin. Bent er á að sameiginleg símsvörun fyrir allt landið dregur úr álagi á vöktum heilsugæslulækna og þar með frítökurétti. Hún bætir þar með vinnuskilyrði heilsugæslulækna um landið.
    Í fylgigögnum sem forsvarsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja afhentu heilbrigðisnefnd kom m.a. fram að fjárveiting til þeirrar stofnunar miðað við íbúa er talsvert miklu lægri en til sambærilegra stofnana. Telur 1. minni hluti að fjárlaganefnd þurfi að skoða rökin fyrir þessari ójöfnu skiptingu. Til dæmis kom fram að hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru fjárveitingar árið 2008 78.734 kr. á hvern íbúa, hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands 101.013 kr. á hvern íbúa, hjá Heilbrigðisstofnun Akraness 138.403 kr. á hvern íbúa, hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands 147.798 kr. á hvern íbúa, hjá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, 159.002 kr. á hvern íbúa, hjá Heilbrigðisstofnun Ísafjarðar 164.760 kr. á hvern íbúa, hjá Heilbrigðisstofnun Blönduóss 191.261 kr. á hvern íbúa og hjá Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 200.976 kr. á hvern íbúa, sjá fylgiskjal nr. 3.
    Sjúkrahús landsins hafa ráðist í talsvert mikla hagræðingu til að mæta niðurskurðarkröfum. Bent hefur verið á að gæta þurfi að stöðu lítilla, landfræðilega einangraðra stofnana, svo sem öldrunarstofnana, sem bæði fá á sig fækkun hjúkrunarrýma samkvæmt mati, auk kröfu um hagræðingu í rekstri en þessar stofnanir njóta ekki hagræðis vegna samlegðaráhrifa og nálægðar við aðrar heilbrigðisstofnanir. Því getur hagræðingarkrafan valdið því að ekki verði rekstrargrundvöllur til þess að halda úti þeirri þjónustu sem nauðsynleg er á svæðinu. Þessar ábendingar komu m.a. fram í viðræðum nefndarinnar við Heilbrigðisstofnun Austurlands.
    Í nefndinni kom fram að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur farið í gegnum mikla hagræðingu með kjaraskerðingu, fækkun starfa á sviði hjúkrunar og innan yfirstjórnar og stjórnsýslu. Áframhaldandi niðurskurður muni skerða þjónustu og leiða til frekari uppsagna. Nokkrar heilbrigðisstofnanir búa við talsverðan halla og af þeim sökum háa dráttarvexti. Hvetur 1. minni hluti til þess að fjárlaganefnd skoði þann vanda sérstaklega.
    Margir gestir nefndarinnar nefndu að gera þyrfti átak í að koma á rafrænni sjúkraskrá. Slík sjúkraskrá mundi spara háar upphæðir fljótt og örugglega. 1. minni hluti telur að fjárlaganefnd eigi að skoða möguleika á að koma henni á.
    Heilbrigðisnefnd hefur rætt lauslega um skipulagsbreytingar sem gætu sparað fjármagn án þess að skerða þjónustu. Meðal annars hefur nefndin rætt um hvort rétt væri að koma á sama kerfi og annars staðar á Norðurlöndunum hvað varðar tilvísanir til lækna. Rætt var um hvort rétt væri að koma á svokölluðu valfrjálsu stýrikerfi að danskri fyrirmynd. Það byggist á því að sjúklingur getur valið um tvær leiðir. Annars vegar getur hann farið til heilsugæslunnar til að fá úrbót meina sinna og eftir atvikum fengið tilvísun til sérfræðings ef á þarf að halda. Þessi leið ætti að vera ódýr kostur. Hins vegar gæti hann valið að fara hina leiðina, þ.e. farið beint til sérfræðilæknis en þá mundi hann ekki njóta niðurgreiðslu frá ríkinu eins og í dag heldur borga reikninginn upp í topp sjálfur. Með þessum hætti væri þjónustuflæði milli þjónustustiga eðlilegra og hagkvæmara en í dag, þ.e. fyrsti viðkomustaður yrði oftast heilsugæslan. Líklegt er að það tæki nokkur ár að koma framangreindri skipulagsbreytingu á þar sem styrkja þarf afl heilsugæslunnar til að taka við auknum fjölda sjúklinga. 1. minni hluti saknar þess að ekki skuli hafa verið lagt til hliðar fjármagn í fjárlagafrumvarpinu til að skoða og undirbúa slíka skipulagsbreytingu. Þetta er eftirtektarvert í ljósi þess að talsmenn flestra flokka á Alþingi hafa lýst vilja til að skoða slíka skipulagsbreytingu til að nýta fjármagn betur en gert er nú. Nefndin hefur einnig rætt um að brýnt sé að efla forvarnir til að spara útgjöld til framtíðar.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir grundvallarbreytingum á fjárhagsábyrgð milli heilbrigðisráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytisins vegna öldrunarmála. Lækkun útgjalda heilbrigðisráðuneytis vegna reksturs hjúkrunarheimila nemur 18.943,5 m.kr. og 431,5 m.kr. vegna sjúkratrygginga, þ.e. vegna greiðslu daggjalda á hjúkrunarrýmum. Þessar breytingar eru gerðar í andstöðu við heilbrigðisráðuneytið miðað við þær upplýsingar sem fram hafa komið í nefndinni og birtust fyrst í frumvarpi til fjárlaga án nokkurrar pólitískrar umræðu. Rökin fyrir þessari breytingu eru veigalítil og sögð vera þau að hjúkrunarheimili sé heimili aldraðs fólks sem þarf mikla og sérhæfða læknis- og hjúkrunarþjónustu. 1. minni hluti telur þessi rök ekki nægjanleg og bendir á að hjúkrunarheimili er í eðli sínu heilbrigðisstofnun enda er um helmingur starfsmanna á hjúkrunarheimili innan heilbrigðisstétta. 1. minni hluta skilst að á sama tíma og færa á fjárhagslega ábyrgð á hjúkrunarheimilum til félags- og tryggingamálaráðuneytis eigi fjárhagsleg ábyrgð á hjúkrunarrýmum á heilbrigðisstofnunum að vera áfram hjá heilbrigðisráðuneytinu. Verði málum háttað með þessum hætti verður fjárhagsleg ábyrgð á sömu þjónustu hjá tveimur ráðuneytum. Slíkt er óeðlilegt. 1. minni hluti telur því rangt að færa fjárhagsábyrgð á hjúkrunarheimilum til félags- og tryggingamálaráðuneytis og telur að sú ábyrgð eigi áfram að vera hjá heilbrigðisráðuneytinu. Einnig skal bent á að í 4. tölul. A-liðar 6. gr. reglugerðar um Stjórnarráð Íslands nr. 177/2007 segir að heilbrigðisráðuneytið fari með heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum. Í 5. tölul. A-liðar 4. gr. segir enn fremur að félags- og tryggingamálaráðuneytið fari með uppbyggingu og öldrunarþjónustu á hjúkrunarheimilum. Engin rök eru því fyrir því að taka fjárhagslega ábyrgð á hjúkrunarheimilum frá heilbrigðisráðuneytinu.
    Þar sem skera þarf niður fjármagn til heilbrigðismála á næstu árum þarf sérstaklega að gæta að og vakta hvort niðurskurðurinn auki opinber útgjöld annars staðar svo sem í formi örorkubóta, atvinnuleysisbóta eða félagslegra útgjalda sveitarfélaga.

Safnliðir.
    Heilbrigðisnefnd skipti sér niður í hópa og tók viðtöl við aðila sem sótt hafa um fjárstyrki af safnlið. Nefndin ræddi um að breyta þyrfti vinnubrögðum við afgreiðslu safnliða almennt á Alþingi. Sú umræða hefur átt sér stað í nefndum Alþingis um árabil og er því ekki ný af nálinni. 1. minni hluti telur að í stað þess að alþingismenn velti fyrir sér hvort og þá hvaða félagasamtök og verkefni eigi að styrkja af safnliðum eigi ráðuneytin að afgreiða slík mál. Fagnefndir ættu frekar að gefa ráðuneytum tilmæli um helstu áherslur við úthlutunina en ættu ekki sjálfar að úthluta fé til einstakra verkefna og félaga. Núverandi úthlutun er ófagleg og ómarkviss. Einnig telur 1. minni hluti að lækka hefði mátt safnliði verulega í ljósi efnahagskreppunnar sem nú ríkir en nefndin hafði 44 m.kr. til úthlutunar samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2010. Á tímabilinu 2006–2009 var úthlutunin eftirfarandi:

2004 2005 2006 2007 2008 2009 Frv. 2010
22.800 32.700 34.100 44.000 77.000 50.000 44.000

    Annar minni hluti telur að breyta eigi vinnubrögðum við úthlutun safnliða í grundvallaratriðum þar sem um töluverða fjármuni er að ræða en árin 2004–2009 hafði nefndin samtals 260,6 m.kr. til úthlutunar.
    

Alþingi, 13. nóv. 2009.

Siv Friðleifsdóttir.


    Fylgiskjöl með álitinu:
     1.      Frá orði til athafna – Radíusverkefnið. Vinnuskjal.
     2.      Minnisblað frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. (9. nóvember 2009.)
     3.      Minnisblað frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. (9. nóvember 2009.)
     4.      Minnisblað frá St. Jósefsspítala – Sólvangi um starfsemina 2008.
     5.      Minnisblað frá framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri. (2. nóvember 2009.)



Fylgiskjal XVI.



Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (08 Heilbrigðisráðuneyti).

Frá 2. minni hluta heilbrigðisnefndar.



    Heilbrigðisnefnd hefur fjallað um heilbrigðiskafla fjárlagafrumvarpsins og gert tilllögu að skiptingu á einstökum safnliðum.
    Annar minni hluti bendir á að í frumvarpinu er gert ráð fyrir að framlög til sjúkratrygginga lækki um 20% Ljóst er að hér er um mikla lækkun að ræða en hvorki hefur verið kynnt fyrir nefndinni né rætt innan hennar hvernig ætlað er að ná fram fyrirhuguðum sparnaði.
    Í áliti meiri hluta nefndarinnar er fjallað um fyrirhugaðar skipulagsbreytingar innan heilbrigðiskerfisins. 2. minni hluti tekur undir með meiri hlutanum um mikilvægi þess að flýta fyrirhuguðum skipulagsbreytingum. Aftur á móti vill 2. minni hluti árétta að ekki hafa verið kynntir fyrir nefndinni útreikningar heilbrigðisráðuneytisins á sparnaði við skipulagsbreytingar á kragasvæðinu svokallaða en á fundi nefndarinnar hefur það verið upplýst að fjárhagslegur ávinningur breytinganna geti numið um það bil 2 milljörðum kr. á ári. Ef frumvarpið nær fram að ganga mun það leiða til mikillar þjónustuskerðingar á Landspítala og til verða biðlistar sem ekki eru til staðar núna.
    Enn fremur vill 2. minni hluti árétta að þótt mikilvægt sé að fara í endurskipulagningu heilbrigðisþjónustu á kragasvæðinu er ekki síður mikilvægt að hefja slíkt ferli fyrir landið allt. Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir skipulagsbreytingum á landsbyggðinni en ljóst að fjárhagslegur ávinningur gæti þar orðið töluverður. Ef haldið verður áfram með flatan niðurskurð í stað skipulagsbreytinga verða til dæmis framlög til Sjúkrahússins á Akureyri 1 milljarði kr. lægri árið 2012 en þau voru árið 2008. 2. minni hluti telur öllum vera ljóst að slíkt hefði í för með sér algert hrun þjónustunnar.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir töluverðri yfirfærslu heilbrigðisþjónustu frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Þessi yfirfærsla verkefna hefur verið ákveðin án nokkurrar umræðu eða útskýringa. Fram kom í nefndinni að hugsanlega mætti ná fram meiri hagræðingu í rekstri með frekari samþættingu heilbrigðisstofnana og hjúkrunarheimila. Er það álit 2. minni hluta að heilbrigðisþjónusta skuli vera á höndum heilbrigðisráðuneytis en ekki annarra ráðuneyta.
    Annar minni hluti vill benda á að við útreikning á gengisáhrifum er ekki gert ráð fyrir raunverulegum áhrifum gengis á rekstur stofnana. Þetta kemur einstaklega illa niður á Landspítalanum þar sem gengisáhrif ársins 2009, umfram forsendur fjárlaga, hafa verið metin til 900 millj. kr. Telur 2. minni hluti mikilvægt að taka tillit til þessa við gerð fjárlaga fyrir árið 2010.
    Jafnframt kom fram í máli gesta nefndarinnar að afskipti ráðherra af fjárlögum þessa árs hafi komið illa niður á rekstri stofnana. Þannig voru teknar af sértekjur hjá Landspítala og stofnuninni gert að skera niður sem þeirri upphæð nam. Var hér um að ræða um 152 millj. kr. og fékk stofnunin að vita af þessum aukna niðurskurði á miðju ári. Einnig stöðvaði ráðherra fyrirhugaðan sparnað á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sem kallaði á 30 millj. kr. halla á stofnuninni sem flyst yfir á næsta ár.
    Annar minni hluti vill árétta að fram hefur komið að stofnanir hafa mikla möguleika á að auka sértekjur sínar með því að leigja aðstöðu til læknistengdrar heilbrigðisþjónustu. Tekið hefur verið fyrir það af fyrrverandi ráðherra með þeim afleiðingum að stofnanirnar verða af tekjum. Er það álit 2. minni hluta að mikilvægt sé á þessum niðurskurðartímum að stofnanir geti nýtt sér leiðir til að auka tekjur sínar til að koma í veg fyrir skerðingu á öryggi og þjónustu við sjúklinga.
    Annar minni hluti tekur ekki sérstaka afstöðu til tillögu meiri hlutans um úthlutun safnliða.

Alþingi, 13. nóv. 2009.

Guðlaugur Þór Þórðarson,
Ragnheiður Ríkharðsdóttir.




Fylgiskjal XVII.



Álit



um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2010 (10 Samgöngu- og sveitarstjónarráðuneyti).

Frá samgöngunefnd.



    Samgöngunefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar fjallað um þann hluta fjárlagafrumvarpsins sem er á málefnasviði hennar, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, og bréf fjárlaganefndar, dags. 19. október 2009. Nefndin fékk á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra, Ingilín Kristmannsdóttur skrifstofustjóra og Odd Einarsson rekstrarstjóra frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti til að gera grein fyrir þeim liðum fjárlagafrumvarpsins sem snúa að ráðuneytinu.
    Nefndin vekur athygli á því að sá málaflokkur sem heyrir undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið er sá málaflokkur sem verður fyrir mestum niðurskurði og því er nauðsynlegt að vanda vel til verka og tryggja eins og framast er unnt að þjónusta skerðist ekki né störf glatist. Fram kom á fundi nefndarinnar að heildarútgjöld samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins árið 2010 eru áætluð 44.225 m.kr. á rekstrargrunni. Frá dragast sértekjur að fjárhæð 6.652 m.kr. en þær nema 15% af heildargjöldum ráðuneytisins. Gjöld umfram tekjur eru 37.573 m.kr. og af þeirri fjárhæð eru 21.336 m.kr. fjármagnaðar með beinu framlagi úr ríkissjóði og 16.162 m.kr. innheimtar af ríkistekjum. Mismunurinn, 75 m.kr., færist til hækkunar á viðskiptahreyfingum ríkissjóðs. Í frumvarpinu dragast útgjöld samgöngu- og sveitarstjónarráðuneytisins saman um 13.605 m.kr. á verðlagi fjárlaga 2009.
    Rekstrargjöld ráðuneytisins að frádregnum sértekjum eru áætluð 7.771 m.kr. og lækka því um 614,8 m.kr. Í umfjöllun kom fram að rekstrarfjárveitingar flestra stofnana og verkefna sem heyra undir ráðuneytið eru lækkaðar vegna áforma um hagræðingu í rekstrarkostnaði ríkissjóðs. Neyslu- og rekstrartilfærslur hækka um 60,6 m.kr. og verða 14.471,8 m.kr. en eru 14.411,2 m.kr. í fjárlögum síðasta árs. Gert er ráð fyrir að viðhalds- og stofnkostnaður verði 15.330,2 m.kr. og er það 12.835,6 m.kr. lækkun milli ára til þess að mæta áformum um samdrátt í ríkisútgjöldum, annars vegar lækkun á framlagi til vegaframkvæmda upp á 11.750 m.kr. og hins vegar 500 m. kr. lækkun á framlagi vegna viðhalds vega. Nefndin leggur mikla áherslu á mikilvægi þess að við skipulag þjónustu í ljósi niðurskurðar, svo sem við snjómokstur, verði leitast við að tryggja greiðar og öruggar samgöngur. Skuldbindandi samningar sem ráðuneytið hefur gert nema um 4.869 m.kr. Samtals munu samningarnir því nema um 9,2% af heildarútgjöldum ráðuneytisins á næsta ári.
    Í ljósi áframhaldandi niðurskurðar á ríkisútgjöldum næstu árin leggur nefndin áherslu á að allar leiðir til hagræðingar séu kannaðar. Í ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórnarmála eru mörg verkefni og stofnanir sem má sameina og telur nefndin brýnt að sú vinna verði sett strax í forgang. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að reynt verði að ráðast í þau verkefni sem líkleg eru til að skapa atvinnu og leggur í því sambandi áherslu á ýmis viðhaldsverkefni í vegagerð. Nefndin vill einnig vekja athygli á því að nú stendur til að semja um aðkomu lífeyrissjóðanna í landinu að stærri samgönguframkvæmdum sem að mestu verða framkvæmdar á suðvesturhorni landsins. Í því ljósi bendir nefndin á að það rými sem slíkt ætti að skapa ríkissjóði sé rétt að nýta til framkvæmda á þeim svæðum landsins sem ekki njóta slíkra stórframkvæmda. Nefndin hvetur til þess að áfram verði unnið að sameiningu sveitarfélaga í samráði við heimamenn og reynt að treysta og efla byggðir landsins og gera þeim kleift að taka að sér aukin verkefni frá ríkinu. Loks vekur nefndin athygli á því að henni hefur enn ekki borist endurskoðuð samgönguáætlun til umfjöllunnar og ítrekar mikilvægi þess að hún verði lögð fram sem fyrst. Áliti þessu er því skilað með þeim fyrirvara að samgönguáætlun liggur ekki fyrir. Nefndin vekur athygli á því að í sumar var í tengslum við endurskoðun ríkisfjármála óheimilt að flytja ónýttar fjárheimildir frá fyrra ári eins og heimilt hefur verið að gera. Nefndin bendir á að eðlilegar skýringar geti verið á því að ónýttar heimildir sé fluttar á milli ára svo sem er varðar þær framkvæmdir sem þegar eru í gangi og þarf að ljúka.
    Í ljósi erfiðrar stöðu ríkissjóðs liggur fyrir að ekki er bolmagn til að standa undir uppbyggingu samgöngukerfa og innviða eins og gert hefur verið undanfarin ár. Það er því óhjákvæmilegt að hægja á nýframkvæmdum en nefndin leggur áherslu á að leita jafnframt leiða til að veita áfram fjármagn til að viðhalda mannvirkjum.
    Björn Valur Gíslason, Árni Johnsen og Oddný Harðardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 11.nóv. 2009.

Róbert Marshall, varaform.,
Lilja Rafney Magnúsdóttir,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
Björgvin G Sigurðsson,
Guðmundur Steingrímsson, með fyrirvara,
Kristján Þór Júlíusson, með fyrirvara.




Fylgiskjal XVIII.



Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (11 Iðnaðarráðuneyti).

Frá meiri hluta iðnaðarnefndar.



    Iðnaðarnefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar farið yfir þá þætti fjárlagafrumvarpsins sem eru á málefnasviði hennar, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, og bréf fjárlaganefndar frá 19. október 2009. Nefndin hefur fengið á sinn fund Ingu Ósk Jónsdóttur og Kristján Skarphéðinsson frá iðnaðarráðuneyti.
    Heildargjöld iðnaðarráðuneytis árið 2010 eru áætluð um 6.621 m.kr. á rekstrargrunni. Frá dragast sértekjur að fjárhæð 1.071 m.kr. sem nema 16,2% af heildargjöldum ráðuneytisins. Gjöld umfram tekjur eru 5.550 m.kr. og af þeirri fjárhæð eru 5.199 m.kr. fjármagnaðar með beinu framlagi úr ríkissjóði og 351 m.kr. innheimtar af ríkistekjum.
    Útgjöld iðnaðarráðuneytis dragast saman um 834,2 m.kr. á verðlagi fjárlaga 2009. Eins og fram kemur í frumvarpinu má segja að breytingum á útgjöldum megi skipta í þrennt. Í fyrsta lagi eru gerðar ráðstafanir til að minnka útgjöld iðnaðarráðuneytis um 499 m.kr. í samræmi við áætlun ríkisstjórnarinnar um jöfnuð í ríkisfjármálum 2009–2013. Í öðru lagi falla til nokkrar nýjar útgjaldaskuldbindingar sem nema 307,5 m.kr. Í þriðja lagi falla niður ýmis tímabundin framlög að fjárhæð 642,7 m.kr.
    Við umfjöllun málsins í nefndinni kom í ljós að iðnaðarráðuneyti taldi að í tillögum sínum til fjármálaráðuneytis mundi rúmast aukin fjárveiting til annars vegar Tækniþróunarsjóðs og hins vegar fjárveiting til að reka markaðsstofur ferðamála á landsbyggðinni. Með öðrum orðum vonaðist ráðuneytið eftir að í frumvarpinu yrði fjárveiting til Tækniþróunarsjóðs aukin um 100 m.kr. Meiri hlutinn telur mikilvægt að sjóðurinn fái aukið fjármagn til samræmis við það sem ráðuneytið lagði upp með. Þá lagði ráðuneytið til 50 m.kr. fjárveitingu við fjármálaráðuneytið til að reka framangreindar markaðsstofur. Um síðarnefnda atriðið minnir meiri hlutinn á ummæli í athugasemdum við frumvarpið þar sem fram kemur að til skoðunar hafi verið að ríkið kæmi að starfi markaðsstofa á landsvísu og að þeirri skoðun yrði haldið áfram áður en frumvarpið yrði að lögum. Eins og fram kemur í frumvarpinu var ráðuneytum ætlað að undirbúa valkosti og tillögur um lækkun útgjalda sem næmi um 10% af heildarveltu. Hvað varðar þá málaflokka sem undir nefndina heyra hefur helst verið reynt að hlífa málaflokkum er snúa að atvinnuþróun og nýsköpun.
    Nefndin stendur saman að skiptingu þeirra safnliða sem undir hana heyra, þ.e. lið 11-299- 1.50 Nýsköpun og markaðsmál og lið 11-599-1.90 Ýmis ferðamál, sbr. tvö skjöl sem fylgja áliti þessu þar sem gerð er grein fyrir úthlutun nefndarinnar.

Alþingi, 12. nóv. 2009.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaform.,
Anna Pála Sverrisdóttir,
Atli Gíslason,
Jónína Rós Guðmundsdóttir,
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
Margrét Tryggvadóttir.




Fylgiskjal XIX.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (11 Iðnaðarráðuneyti).

Frá minni hluta iðnaðarnefndar.



    Iðnaðarnefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar farið yfir þá þætti fjárlagafrumvarpsins sem eru á málefnasviði hennar, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, og bréf fjárlaganefndar frá 19. október 2009. Nefndin hefur fengið á sinn fund Ingu Ósk Jónsdóttur og Kristján Skarphéðinsson frá iðnaðarráðuneyti.
    Heildargjöld iðnaðarráðuneytis árið 2010 eru áætluð um 6.621 m.kr. á rekstrargrunni. Frá dragast sértekjur að fjárhæð 1.071 m.kr. sem nema 16,2% af heildargjöldum ráðuneytisins. Gjöld umfram tekjur eru 5.550 m.kr. og af þeirri fjárhæð eru 5.199 m.kr. fjármagnaðar með beinu framlagi úr ríkissjóði og 351 m.kr. innheimtar af ríkistekjum. Útgjöld iðnaðarráðuneytis dragast saman um 834,2 m.kr. á verðlagi fjárlaga 2009.
    Minni hlutinn telur að of mörgum spurningum sé ósvarað varðandi þau málefni er heyra undir nefndina til að hægt sé að standa að áliti meiri hluta nefndarinnar. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa boðað viðamiklar breytingar á rekstarumhverfi þeirra fyrirtækja sem heyra undir málefnasvið nefndarinnar Nægir þar að nefna iðnfyrirtæki og fyrirtæki í ferðaþjónustu. Minni hlutinn lýsir þungum áhyggjum af fyrirhuguðum hugmyndum um breytingar á skattalögum sem m.a. fyrirtækjum í iðnaði og ferðaþjónustu er ætlað að bera.
    Misvísandi skilaboð ráðherra ríkisstjórnarinnar hafa, að mati minni hlutans, nú þegar skaðað orðspor og möguleika landsins til að auka við fjárfestingar sem þjóðarbúinu eru lífsnauðsynlegar. Leggur minni hlutinn áherslu á að ríkisstjórnarflokkarnir komi sér saman um stefnu í þessum málum eða lýsi því yfir að horfið verði frá skattlagningu þessara atvinnugreina.
    Svo virðist sem uppi séu hugmyndir um að skattleggja ferðaþjónustuna með margvíslegum hætti. Rætt hefur verið um að hækka svokallað vitagjald, hækka virðisaukaskatt á hótelgistingu úr 7% í 14%, taka upp komugjöld og setja á kolefnisskatt sem leggjast mun á ferðir með flugi, langferðabílum og bílaleigubílum svo eitthvað sé nefnt. Þá er rætt um að setja á orkuskatta og kolefnisskatt sem er afar óljóst hvernig verða útfærðir. Afleiðingin verður sú að fjárfestingar í iðnaði dragast verulega saman á þeim tíma sem einmitt er þörf á frekari fjárfestingu. Minni hlutinn hvetur til þess að gætt sé hófs og einfaldleika við framkvæmd skattheimtu og bendir á að vænlegra sé t.d. hvað ferðamenn varðar að í stað þess að hækka alla mögulega skattstofna verði innheimtur skattur af einum skattstofni.
    Minni hlutinn telur að nánari upplýsingar og útfærslur hefðu þurft að liggja fyrir áður en iðnaðarnefnd gefur endanlega umsögn um frumvarp til fjárlaga. Því hvetur minni hlutinn fjárlaganefnd til að kalla nú þegar eftir þessum upplýsingum.
    Við umfjöllun málsins í nefndinni kom í ljós að iðnaðarráðuneyti taldi að í tillögum sínum til fjármálaráðuneytisins mundi rúmast aukin fjárveiting til annars vegar Tækniþróunarsjóðs og hins vegar að fjárveiting fengist til að reka markaðsstofur ferðamála á landsbyggðinni. Iðnaðarráðuneyti vonaðist með öðrum orðum eftir aukinni fjárveitingu til Tækniþróunarsjóðs upp á 100 m.kr. Minni hlutinn tekur undir áherslur ráðuneytisins hvað þetta varðar og leggur áherslu á mikilvægi Tækniþróunarsjóðs og lýsir undrun sinni á áherslum fjármálaráðuneytisins hvað þetta varðar.
    Þá telur minni hlutinn það ekki í samræmi við fögur orð um mikilvægi ferðaþjónustunnar að skerða framlag til markaðsstofa á landsbyggðinni. Tekið er undir með meiri hlutanum um málefni markaðsstofa en þeirra er sérstaklega getið í athugasemdum við frumvarpið þar sem fram kemur að til skoðunar hafi verið að ríkið kæmi að starfi markaðsstofa á landsvísu og að þeirri skoðun yrði haldið áfram áður en frumvarpið yrði að lögum.
    Tækifæri Íslands til að verða fyrsti valkostur ferðamanna hefur sjaldan eða aldrei verið betri. Því leggur minni hlutinn áherslu á að allra leiða verði leitað til að stórauka fjármuni til markaðsstarfs erlendis því þeir fjármunir munu skila sér margfalt til baka.

Alþingi, 12. nóv. 2009.

Unnur Brá Konráðsdóttir,
Gunnar Bragi Sveinsson,
Tryggvi Þór Herbertsson.




Fylgiskjal XX.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (12 Efnahags- og viðskiptaráðuneyti).

Frá viðskiptanefnd.



    Viðskiptanefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar farið yfir þá þætti fjárlagafrumvarpsins sem eru á málefnasviði hennar, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, og bréf fjárlaganefndar frá 19. október 2009. Nefndin hefur fengið á sinn fund Gunnar Andersen, Kristbjörn Bjarnason og Þorstein Marinósson frá Fjármálaeftirlitinu, Helgu Óskarsdóttur og Jónínu S. Lárusdóttur frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Pál Gunnar Pálsson frá Samkeppniseftirlitinu.
    Heildargjöld efnahags- og viðskiptaráðuneytis árið 2010 eru áætluð um 3.066,7 m.kr. á rekstrargrunni. Frá dragast sértekjur að fjárhæð 100,4 m.kr. sem nema 3,3% af heildargjöldum ráðuneytisins. Gjöld umfram tekjur eru 2.966,3 m.kr. og af þeirri fjárhæð eru 1.224,3 m.kr. fjármagnaðar með beinu framlagi úr ríkissjóði og 1.742 m.kr. innheimtar af ríkistekjum.
    Síðastliðið vor var ráðuneytum gert að undirbúa valkosti og tillögur um lækkun útgjalda sem næmi um 10% af heildarveltu. Fjárheimildir stofnana ráðuneytisins voru því lækkaðar sem því nemur. Rétt er að vekja athygli á því að útgjöld efnahags- og viðskiptaráðuneytisins hækka um samtals 499,5 m.kr. á árinu 2010 frá því sem annars hefði orðið vegna verkefna sem hafa verið flutt til ráðuneytisins svo og vegna verkefna sem eru flutt til annarra ráðuneyta.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að útgjöld efnahags- og viðskiptaráðuneytisins dragist saman um 166 m.kr. á verðlagi fjárlaga 2009 og má skipta breytingum á útgjöldum í þrjá þætti. Gerðar verða ráðstafanir til að lækka útgjöld ráðuneytisins um 148,3 m.kr. í samræmi við áætlun ríkisstjórnarinnar um jöfnuð í ríkisfjármálum 2009–2013. Þá dragast aðrar útgjaldaskuldbindingar saman um samtals 11,7 m.kr. á árinu 2010. Loks falla niður tímabundin framlög að fjárhæð 6 m.kr.
    Við umfjöllun um málið í nefndinni var sjónum einkum beint að Samkeppniseftirlitinu. Fram kom að ráðuneytið hefði lagt til að stofnunin yrði efld með 90 m.kr. viðbótarfjárveitingu. Þessi tillaga náði ekki fram að ganga og var Samkeppniseftirlitinu gert að hagræða um 30,8 m.kr. og hefur stofnunin ráðist í launalækkanir ásamt því að forgangsraða verkefnum. Nú þegar mikil endurskipulagning á sér stað í viðskiptalífinu verður hlutverk Samkeppniseftirlitsins æ brýnna og mikilvægt að sem fyrr haldi það vöku sinni. Nefndin leggur til að Samkeppniseftirlitið fái heimild til að afla tekna með því að innheimta gjald fyrir eftirlit með samruna fyrirtækja og með töku kærugjalda vegna kæru til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Nefndin telur mikilvægt að báðar þessar leiðir verði farnar til tekjuöflunar þannig að starfsemi Samkeppniseftirlitsins skerðist ekki.
    Athygli nefndarinnar var vakin á því að rekstaráætlun Fjármálaeftirlitsins sem lögð var fyrir samráðsnefnd eftirlitsskyldra aðila í sumar er vanáætluð og mun Alþingi þurfa að taka á því vandamáli.

Alþingi, 12. nóv. 2009.

Lilja Mósesdóttir, form.,
Magnús Orri Schram,
Guðlaugur Þór Þórðarson,
Árni Þór Sigurðsson,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
Eygló Harðardóttir,
Ragnheiður E. Árnadóttir,
Jónína Rós Guðmundsdóttir,
Margrét Tryggvadóttir.




Fylgiskjal XXI.


Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (14 Umhverfisráðuneyti).

Frá meiri hluta umhverfisnefndar.



    Umhverfisnefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar fjallað um þann hluta fjárlagafrumvarpsins sem er á málefnasviði nefndarinnar, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, og bréf fjárlaganefndar til umhverfisnefndar dagsett 19. október 2009.
    Á fund nefndarinnar kom Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir frá umhverfisráðuneyti.
    Heildarútgjöld umhverfisráðuneytis og stofnana þess árið 2010 eru áætluð um 8.896 m.kr. á rekstrargrunni. Frá dragast sértekjur að fjárhæð 2.100 m.kr. en þær nema 23,6% af heildargjöldum ráðuneytisins. Útgjöld ráðuneytisins hækka samkvæmt frumvarpinu um rúmar 8. m.kr. Inn í það reiknast ýmsar nýjar útgjaldaskuldbindingar sem nema 746 m.kr, þar af 632 m.kr. vegna breytinga á fjárheimildum verkefna sem fjármögnuð eru að fullu með ríkistekjum. Á móti koma ráðstafanir til að lækka útgjöld ráðuneytisins um 394 m.kr. í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um samdrátt í ríkisfjármálum auk 344 m.kr. lækkunar sem er tilkomin vegna þess að tímabundin framlög til ýmissa verkefna falla niður.
    Rekstrargjöld ráðuneytisins að frádregnum sértekjum eru áætluð 4.065,9 m.kr. og hækka um 87,8 m.kr. frá fjárlögum þessa árs. Rekstrarfjárveitingar flestra stofnana og verkefna sem heyra undir ráðuneytið eru lækkaðar alls um 314,5 m.kr. sem nemur um 8% að raungildi.
    Gert er ráð fyrir auknum útgjaldaskuldbindingum í rekstri sem nema 333,7 m.kr. og munar mest um 139,9 m.kr. vegna flutnings rafmagnsöryggismála undir Brunamálastofnun ríkisins, 80 m.kr. aukin umsvif Úrvinnslusjóðs og 51,7 m.kr. vegna áformaðs flutnings Náttúrufræðistofnunar í nýtt húsnæði næsta haust. Neyslu- og rekstrartilfærslur hækka um 242,2 m.kr. og verða 2.219 m.kr. en voru í fjárlögum þessa árs 1.976,8 m.kr. Munar þar mest um 370 m.kr. hækkun hjá Endurvinnslunni hf. Viðhalds- og stofnkostnaður er áætlaður 511,2 m.kr. og er það 165,7 m.kr. lækkun milli ára. Munar þar mest um að nú fellur niður 200 m.kr. framlag til stuðnings fráveituframkvæmdum sveitarfélaga.
    Nefndin hefur tekið til umfjöllunar og meðferðar þann hluta fjárlagafrumvarpsins sem snýr að málefnasviði nefndarinnar og kynnt sér samdráttartillögur umhverfisráðuneytisins. Meiri hlutinn telur sýnt að ráðuneytið hefur mætt þeim samdráttarmarkmiðum sem gerð var krafa um með því að skera niður útgjöld til einstakra liða. Skerðingin er þó mismikil á einstakar stofnanir og verkefni enda var hún útfærð eftir forgangsröð og áherslum ráðuneytisins. Þá telur meiri hlutinn rétt að árétta að hækkun útgjalda hjá Endurvinnslunni og Úrvinnslusjóði er tilkomin vegna aukinna tekna enda kemur tekjufærsla á móti útgjöldum.
    Meiri hlutinn áréttar einnig nauðsyn þess í efnahagsþrengingum að ekki sé gengið of nærri stofnunum og verkefnum og reynt að forðast fækkun starfa. Meiri hlutinn leggur auk þess þunga áherslu á að ráðuneyti og ríkisstjórn beiti sér fyrir því að efla umgjörð um og rekstrarskilyrði frjálsra félagasamtaka sem starfa á sviði umhverfismála á Íslandi. Þá telur meiri hlutinn nauðsynlegt að endurskoða fyrirkomulag við úthlutun fjárveitinga af safnliðum í fjárlagafrumvarpinu. Stofna mætti umhverfisverndarsjóð sem samtök gætu sótt styrki í. Slík ráðstöfun mundi stuðla að faglegu og fræðilegu mati á verkefnum sem ráðstafað yrði til.
    Nefndinni hafa borist fimmtán umsóknir um fjárveitingu af safnlið 14-190-1.90, Ýmis verkefni, og komu sjö aðilar á fund nefndarinnar. Meiri hlutinn gerir að tillögu sinni að ellefu umsóknir fái styrk. Við skiptingu styrkja var lögð áhersla á að fjármagn færi til þeirra sem standa fyrir fræðsluverkefnum, almannafræðslu og útgáfu kynningarefnis og frjálsra félagasamtaka. Auk þess telur meiri hlutinn mikilvægt að styrkja Náttúrufræðistofu Kópavogs og uppbyggingu náttúruseturs á Húsabakka í Svarfaðardal. Samkvæmt tillögum meiri hlutans er nokkuð skorið niður hjá flestum aðilum frá fyrri árum og áréttar hann að sótt hafi verið um til margra brýnna verkefna en ekki sé svigrúm til að veita öllum styrk. Skotveiðifélag Íslands sækir um styrk til tveggja verkefna og er tillaga að styrk ætluð til gerðar fræðsluefnis um hóflegar veiðar á rjúpu. Samkvæmt tillögum meiri hlutans er fé veitt til ýmissa landshluta og brýnna viðfangsefna. Gerð er tillaga að framlagi til tveggja verkefna er tengjast gerð hættumats og viðbragðsáætlana vegna gróðurelda og telur meiri hlutinn rétt að benda á að í Skorradal er verkefnið unnið í samvinnu við Veðurstofuna en þar er ein stærsta sumarbústaðabyggð landsins.
    Meiri hlutinn telur rétt að ítreka þau sjónarmið sem komið hafa fram í álitum umhverfisnefndar vegna frumvarpa til fjárlaga fyrir árið 2009 og 2008 að rétt sé að íhuga vandlega hvort ekki sé ástæða og grundvöllur til að Náttúrufræðistofa Kópavogs fái lögformlega stöðu og verði látin heyra undir lög um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, nr. 60/1992.
    Meiri hlutinn gerir að tillögu sinni að Framkvæmdaráð Snæfellsness fái 10 m.kr. til að ljúka vinnu vegna verkefna sem tengjast Green Globe vottun sveitarfélaganna á nesinu. Á fundi nefndarinnar kom fram að sótt er um 15 m.kr. nú til að ljúka mikilvægum áföngum en svo er gert ráð fyrir því að verkefnið verði rekið af sveitarfélögum á svæðinu.
    Meiri hlutinn gerir tillögu að 6,3 m.kr. styrk til Landverndar sem fagnar í ár 40 ára afmæli sínu. Þá er því beint til fjárlaganefndar að skoða möguleika á því að styðja frekar við Landvernd sem hefur unnið ómetanlegt starf á sviði náttúruverndar, umhverfismála og fræðslu um þessi málefni.
    Að lokum telur meiri hlutinn rétt að benda á að umsóknir frá samtökunum Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs og Gróður fyrir fólk í Fjarðabyggð hafa verið sendar sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd til umfjöllunar en landgræðsluverkefni heyra undir umhverfisráðuneyti. Sama fyrirkomulag var viðhaft í fyrra og því brýnt að leiðrétta þetta fyrir fjárlagagerð næsta árs.
    Tillögur meiri hlutans um skiptingu safnliðarins koma fram í sérstöku fylgiskjali.
    Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu álitsins.

Alþingi, 9. nóv. 2009.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, form.,
Ögmundur Jónasson,
Magnús Orri Schram,
Ólína Þorvarðardóttir,
Birgitta Jónsdóttir.




Fylgiskjal XXII.



Álit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2010 (14 Umhverfisráðuneyti).

Frá 1. minni hluta umhverfisnefndar.


    
    Umhverfisnefnd hefur að beiðni fjárlaganefndar fjallað um þann hluta fjárlagafrumvarpsins sem er á málefnasviði nefndarinnar, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, og bréf fjárlaganefndar til umhverfisnefndar, dagsett 19. október 2009.
    Á fund nefndarinnar kom Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir frá umhverfisráðuneyti.
    Rekstrarfjárveitingar flestra stofnana og verkefna sem heyra undir ráðuneytið eru lækkaðar alls um 314,5 millj. kr. sem nemur einungis um 8% að raungildi og er því kröfu ríkisstjórnarinnar um 10% flatan niðurskurð ekki mætt hjá ráðuneytinu, t.d. er einungis skorið niður um 3,5% á aðalskrifstofu ráðuneytisins frá reikningi 2008. Er það harmað í þessu áliti, sérstaklega í ljósi þess að mörg brýnni verkefni í öðrum ráðuneytum sæta meiri niðurskurði.
    Nefndin hefur tekið til umfjöllunar og meðferðar þann hluta fjárlagafrumvarpsins sem snýr að málefnasviði nefndarinnar. Er það með miklum ólíkindum að í þeim mikla niðurskurði sem nú er boðaður hafi nefndin til umráða 32,4 millj. kr. á safnliði 14-190-1.90, Ýmis verkefni. Til að fyrirbyggja misskilning og til að koma í veg fyrir rangtúlkun er rétt að geta þess að þær fimmtán umsóknir sem bárust eru allar vel rökstuddar og þarfar. Það er ekki þar með sagt að þær séu það brýnar að þær krefjist sérúthlutunar. Því er hér sett fram sú tillaga að það fjármagn sem umhverfisnefnd er ætlað að gera tillögu um að úthluta verði varið til að standa undir kostnaði við þátttöku eins þingmanns frá hverjum stjórnarandstöðuflokkanna í Kaupmannahafnarráðstefnunni um loftslagsmál í desember nk. Afar brýnt er að sjónarmið allra flokka á Alþingi heyrist þar í þessu brýna hagsmunarmáli þjóðarinnar. Er þessi tillaga lögð fram í ljósi þess að ekki virðist vera til fjármagn til þess að þjóðkjörnir fulltrúar sinni lögbundnum skyldum sínum að taka þátt í alþjóðasamstarfi sem þessu.
    Tekið er undir með meiri hluta umhverfisnefndar sem gerir tillögu um 6,3 millj. kr. styrk til Landverndar sem fagnar í ár 40 ára afmæli sínu á næsta ári. Því sem út af stendur verði ráðstafað til samningsbundinna verkefna ráðuneytisins eins og t.d. Hekluskóga en þar nam niðurskurðurinn um 50% á milli ára.
    Tekið er undir það með meiri hlutanum að ráðuneyti og ríkisstjórn beiti sér fyrir því að efla umgjörð og rekstrarskilyrði frjálsra félagasamtaka sem starfa á sviði umhverfismála á Íslandi. Stofna mætti umhverfisverndarsjóð sem samtök gætu sótt styrki í. Slík ráðstöfun mundi stuðla að faglegu og fræðilegu mati á verkefnum sem ráðstafað yrði til en færi ekki eftir duttlungum meiri hlutans á Alþingi. Einnig er tekið undir það að Náttúrufræðistofa Kópavogs fái lögformlega stöðu og verði látin heyra undir lög um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, nr. 60/1992.

Alþingi, 9. nóv. 2009.



Vigdís Hauksdóttir.